Meiður kaupir 16% í VÍS 22. febrúar 2005 00:01
Meiður fjárfestingarfélag sem er í stærstum hluta í eigu bræðranna í Bakkavör og KB banka hefur keypt sextán prósenta hlut í Vátryggingafélagi Íslands. Meiður verður þar með fjórði stærsti hluthafi VÍS, en markmiðið er samkvæmt heimildum Fréttablaðsins að Meiður auki hlut sinn í 20 prósent. Nýtt hlutafé hefur verið gefið út í VÍS fyrir ríflega hundrað milljónir að nafnvirði og kaupir Meiður allt nýja hlutaféð. Síðasta gengi með hluti í VÍS var á genginu 49 og má því gera ráð fyrir að fjárfesting Meiðs nemi ríflega fimm milljörðum króna. VÍS og Meiður hafa starfað saman sem stórir eigendur í KB banka. Stærsti hluthafinn í VíS er Hesteyri sem er í eigu Skinneyjar, Þinganes á Hornafirði og Fisk Seafood á Sauðarkróki. Auk þeirra eru stærstu hluthafar Samvinnutryggingar og KB banki. Samkvæmt heimildum Fréttablaðsins hefur verið unnið að innkomu Meiðs í hluthafahópinn um nokkurt skeið. VÍS hefur lengi verið í eigu fyrirtækja í samvinnurekstri og stendur hugurinn til þess að skerpa á eignarhaldinu með innkomu stórs einkafjárfestis. Auk samvinnu Meiðs og VÍS í eigendahópi KB banka er talið að þessir aðilar hafi hug á að kaupa, ásamt fleiri fjárfestum, kjölfestuhlut ríkisins í Símanum.
Innlent Viðskipti Mest lesið Mælir með eistnesku poppi til að vekja börnin almennilega Atvinnulíf „Flestir sem eru á þessum lista eru dánir“ Neytendur Dótturfélagið úrskurðað gjaldþrota Viðskipti innlent Eiginkona stofnandans tekur við stjórnartaumunum Viðskipti innlent Indó tekur upp gjaldeyrisálag: „Erfitt en nauðsynlegt skref“ Viðskipti innlent Stóra apasjálfu-málið vekur upp enn fleiri spurningar Atvinnulíf Auglýsa eftir sérfræðingum í Litáen og endurskipuleggja deild Viðskipti innlent Færðu Finnum Jónsbók Viðskipti innlent Vara við svikaherferð í nafni bankans Viðskipti innlent Endurræsing hafin hjá Norðuráli Viðskipti innlent Fleiri fréttir Færðu Finnum Jónsbók Eiginkona stofnandans tekur við stjórnartaumunum Indó tekur upp gjaldeyrisálag: „Erfitt en nauðsynlegt skref“ Dótturfélagið úrskurðað gjaldþrota Vara við svikaherferð í nafni bankans Auglýsa eftir sérfræðingum í Litáen og endurskipuleggja deild Endurræsing hafin hjá Norðuráli B12 Space gjaldþrota Hafa lokið ellefu milljarða króna fjármögnun Yngsti bílasali landsins á lánsbíl frá mömmu Birta Karen ráðin til Viðskiptaráðs Algengast að færri en fjórir skoði eign í fyrstu viku á sölu Ríkið fær tuttugu milljarða frá Landsvirkjun Prentsmiðjan Ísafold gjaldþrota: „Þetta er bara vonlaus business" Samningur um World Class í Eyjum ekki stöðvaður en enn til skoðunar Ráðin forstöðumaður laganáms við lagadeild HR Dagar hf. ráða nýjan fjármálastjóra Hvað spara börnin mín á því að sleppa bílakaupum? „Þetta er ekki græðgi“ Semja um kaup Lyfju á Borgarapóteki Spá Íslandi áfram í topp tíu í landsframleiðslu Ráðin nýr sjálfbærnistjóri Póstsins Sprotafyrirtæki í alvarlegri stöðu Samkeppniseftirlitið ógildir samruna Ferro zinks og Metals Eldsneytisbirgðastaða Icelandair góð en fylgst er með stöðunni Fyrsta skemmtiferðaskipið mætt Tekur við sem forstjóri S4S Stýrivextir verði 8,25 prósent fyrir árslok Stefna Rannís vegna neitunar um endurgreiðslu Ársfundur Orkuveitunnar í beinni á Vísi Sjá meira