Reynt að halda viðskiptum FL Group 30. apríl 2005 00:01
Forstjóri Skeljungs, sem selur Icelandair eldsneyti, segir að fyrirtækið ætli að reyna að halda viðskiptunum, en flugfélagið ætlar að hefja eigin innflutning. Flugleiðir keyptu á síðasta ári eldsneyti fyrir tæplega sex milljarða króna, þar af um helminginn hér á landi. Stöð 2 greindi frá því í gær að FL Group hefði sótt um rúmlega 30 þúsund fermetra lóð í Helguvík undir eldsneytisbirgðastöð og að fyrirtækið ætlaði að flytja inn allt eldsneyti fyrir sig sjálft í framtíðinni og líklega selja öðrum flugfélögum eldsneyti líka. Flugfélagið er stærsti kaupandi eldsneytis á Íslandi með um fimmtung þess sem flutt er inn. Skeljungur sér félaginu fyrir eldsneyti núna en ekki er langur tími eftir af þeim samningi. Gunnar Karl Guðmundsson, forstjóri Skeljungs, hafði ekki heyrt af þessum hugmyndum viðskiptavinar síns þegar Stöð 2 ræddi við hann í dag. Hann sagði þó að þar á bæ myndu menn reyna að bæta sig til að halda viðskiptunum. Enda er þar eftir miklu að slægjast. Á síðasta ári keyptu Flugleiðir eldsneyti fyrir 5,6 milljarða króna. Þar af er um helmingurinn keyptur hér á landi þannig að á síðasta ári námu þau kaup hátt í þremur milljörðum króna. Full alvara er á bak við þessa áætlun hjá FL Group og verður eldsneytinu þá dælt úr skipi í tanka í Helguvík og þaðan mun síðan liggja leiðsla upp á Keflavíkurflugvöll, beint að væng, eins og það er kallað, það er að segja eldsneytinu verður dælt beint úr leiðslunni úr Helguvík í tanka vélanna en ekki fyrst í tank á flugvallarsvæðinu.
Fréttir Innlent Viðskipti Mest lesið Íslendingar lent í slæmum málum á Ítalíu Viðskipti innlent Meta sektað um þrjú þúsund milljarða króna Viðskipti erlent Veiðigjöldin lækkað en ekki hækkað á þessu ári Viðskipti innlent Skuldar þrotabúi föður síns hundruð milljóna króna til Viðskipti innlent Fær hvorki bætur né afsökunarbeiðni eftir að hafa stungið sig á saumnál Neytendur Fækka heimsóknum til muna með einni breytingu Neytendur Samfélagslegt mál að jafnrétti sé virt Framúrskarandi fyrirtæki Lilja Dögg ráðin forstjóri Viðskipti innlent Skoða að sameina Tesla og SpaceX Viðskipti erlent Eitt greiðir arð en annað með neikvætt eigið fé Viðskipti innlent Fleiri fréttir Íslendingar lent í slæmum málum á Ítalíu Veiðigjöldin lækkað en ekki hækkað á þessu ári Skuldar þrotabúi föður síns hundruð milljóna króna til Lilja Dögg ráðin forstjóri Eitt greiðir arð en annað með neikvætt eigið fé Willum í stjórn Litla spítalans Eggert ráðinn til Litla spítalans Taldi sig hafa boðið 5.000 kall í fyrsta farrými en greiddi sexfalt meira Þriggja milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Borgar sig að taka lífeyri samhliða 100% vinnu? Afkoman úr þremur milljónum í plús í tuttugu í mínus Allt uppselt og skellt í lás hjá Skims Tekur við stjórn Fyrirtækjamiðstöðvar Íslandsbanka Fella niður 1,4 milljarða sekt Landsvirkjunar Ísraelskt flugfélag boðar beint flug til Íslands Play komið í eignasafn Icelandair Verðbólguþrýstingurinn að gefa eftir Phoenix Seafood og Eðalfang sameinast Apple notendur geta sent SMS á Neyðarlínu í gegnum gervihnött Íhuga að krefja Ölgerðina skýringa Fljúga daglega til Boston Ekkert fannst í búi Omnom Fær endurgreitt vegna uppbyggingar eftir stórbrunann í Miðhrauni Trébútur fannst í Bónus hnetublöndu „Ég ætla að reyna að kaupa eins mikið og ég get“ Bein útsending: Mótvindur – fundur um ferðaþjónustu í Suðurkjördæmi Svona verða reglur um styrki til rafbílakaupa Rafnar fylgir Herði og segir upp Finnska hugbúnaðarfyrirtækið Finago kaupir Reglu Vélmenni útbúa nú matarbakka og ferja í flugvélarnar Sjá meira