Half Life 2 25. maí 2005 00:01
Árið 1998 kom út fyrstu persónu skotleikur sem hristi ærlega uppí leikjaheiminum. Leikurinn heitir Half-Life og fór sigurför um heiminn og hirti flest öll “leik ársins” verðlaunin það árið. Framhald leiksins er nú komið og ekki seinna vænna. Söguhetjan Gordon Freeman mætir aftur í baráttuna og er sögusviðið City 17 í nánustu framtíð. Mannfólkið býr í ánauð og stóri bróðir fylgist með öllu og öllum. Gordon nær sambandi við gamla starfsfélaga úr Black Mesa tilraunarstöðinni sem eru nú í andspyrnuhreyfingu gegn stóra bróðir og fyrrum yfirmanni Black Mesa, Dr. Breen. Til þess að spila leikinn aðmennilega þarf öflugan vélbúnað til verksins því annars næst ekki rétti fílingurinn úr leiknum. Með nýja tölvu skellti ég HL2 í gang og lifði mig inn í hlutverkið. HL2 heimurinn er gífurlega lifandi og vel hannaður. City 17 er með Austur Evrópskum byggingarstíl þó svo íbúarnir eru satt að segja af Amerísku bergi brotnir. Gordon er leiddur áfram í gegnum borgina með atburðarrás sem er í senn spennandi og örvæntingafull. Þegar komið er útfyrir borgarmörkin breytist takturinn í leiknum og þarf Gordon að komast heill á húfi frá öllum þeim hættum sem þar búa en með aðstoð meðlima andspyrnuhreyfingarinnar eru allir vegir færir. Þeir ganga í lið með Gordon sem getur gefið þeim nokkrar einfaldar skipanir. Þeir gefa líka skotfæri og sjúkrakassa þegar á er þörf. Í þetta sinn fær Gordon að nýta sjó og land farartæki til að komast á milli staða enda eru þær margar hindranirnar sem Gordon þarf að yfirstíga og eru farartækin nauðsynlegur partur til að sýna stærð HL2 umhverfisins. Allmargar lykil staðsetningar eru í leiknum og er hasarinn mismunandi eftir staðsetningu. Það bragðbætir leikinn mikið og gefur spilaranum líka innsýn í öflin á bakvið valdatjöldin. Gordon þarf góðan vopnabúnað og er af nógu af taka. Helst má nefna þyngdarleysisbyssuna sem getur sogað til sín lausa hluti og notað þá sem skotfæri. Alveg magnað tæki sem er eitt það frumlegasta sem ég hef komist í. Leikurinn er uppfærður reglulega í gegnum veituna Steam sem allir þurfa að tengjast til að geta spilað leikinn. Leiknum fylgir líka Counter Strike Source þar sem kóðinn fyrir CS fylgir með. Frábært fyrir þá sem vilja hanna sín eigin borð. Öll myndræn og sjónræn vinnsla leiksins er frammúrskarandi og leikjavélin er til fyrirmyndar. Satt að segja er lítið hægt að setja út á leikinn nema að framleiðendur hefðu mátt setja meira kjöt á söguna og tengsl hins dularfulla G-man við Gordon. Einnig hefði leikurinn mátt vera lengri en allavega vona ég að framhaldið taki ekki önnur fimm ár í framleiðslu til að fá svar við öllum þeim spurningum sem vöknuðu við spilun leiksins. Vonandi skýrist meira í aukapakka fyrir Half Life 2 sem er væntanlegur Niðurstaða: Valve hafa toppað sjálfa sig og skilað afburðarleik með Half Life 2. Skotleikur ársins á PC. Skylduspilun fyrir alla fyrstu persónu skotleikjaspilara. Vélbúnaður: PC Framleiðandi: Valve Útgefandi: Valve Heimasíða: www.half-life2.comG-Man
Franz Leikjavísir Mest lesið „Það braut ísinn að við hefðum deitað sama gaurinn“ Lífið „Ég var heppinn. En ekki hann“ Lífið „Það er önnur hver gella með í vörunum“ Lífið Karlmennskuhlaðvarpið heyrir sögunni til Lífið Fréttatía vikunnar: Körfubolti, laxaastmi og stýrivextir Lífið Simmi Vill og Sunneva Einars létu sig ekki vanta á Jókerinn Lífið Ólafur Ragnar skellti sér á sæþotu eftir langan dag Lífið Skrúfaði titrarann í sundur til að forða nágrönnum frá ónæði Lífið Gómsætar haustkökur að hætti Elenoru Lífið Áslaug Arna fór í meðferð til að vinna bug á köngulóafælni Lífið Fleiri fréttir Árlegt „Fifa“mót GameTíví GameTíví: Heldur för sinni um Night City áfram God of War Ragnarök á PC: Kratos er enn klikkaður Stiklusúpa: Allt það helsta frá kynningu Sony í gær GameTíví: Íslendingaslagur í Warzone Space Marine 2: Fyrirtaks skemmtun af gamla skólanum Ólympíukvöld hjá GameTíví GameTíví: Plortedo spilar sig gegnum Night City CCP kynnir nýjan leik í söguheimi EVE Online GameTíví: Skúrkur í skýjunum GameTíví: Stefna á þrjá sigra í Warzone Astro Bot: Astro stígur ekki feilspor í nánast fullkomnum leik Star Wars heimurinn skoðaður í GameTíví Star Wars Outlaws: Ekki eins hræðilegur og internetið segir Endurgreiða þeim fáu sem keyptu Concord GameTíví: Snúa hlekkjaðir saman úr sumarfríi Sjá meira