Tíska og hönnun

"Í sandölum og ermalausum bol"

Að vera í sandölum og ermalausum bol á svona dögum er algjörlega málið. Láta sólina og hitann leika um kroppinn og njóta þess að fletta af sér flíkunum. Hvort sem maður er að spóka sig í bænum með ís í einni og bjór í hinni, sóla sig í Nauthólsvíkinni, eða bara hvar sem er, þá eru það sandalar og ermalaus bolur sem ganga alltaf alls staðar á bongóblíðviðrisdögum. Nóg er til af sandölum og litlum bolum um allan bæ, oft á frábæru verði svo það ætti að vera á hvers manns færi að nálgast þessa mest ómissandi hluti. sumarsins.

Grænblár bolur kr 2.490 Sandalar (grænir) kr. 2.490
Terracotta bolur kr. 899 Sandalar kr. 4.990
Gulur bolur kr. 990 Sandalar (með semelíusteinum) kr. 3.990





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.