Lífið

Magna - æðið heldur áfram

Sú staðreynd að fjórir keppendur verði að öllum líkindum eftir í lokaþættinum rennir stoðum undir þá kenningu að tveir söngvarar frekar en einn muni leiða hljómsveitina.
Sú staðreynd að fjórir keppendur verði að öllum líkindum eftir í lokaþættinum rennir stoðum undir þá kenningu að tveir söngvarar frekar en einn muni leiða hljómsveitina.
Sjónvarpsstöin Skjár verður með Magna - vöku á undan Rock Star: Supernova þættinum sem er á dagskrá annað kvöld. Spennan magnast með hverri mínútu enda eru nú einungis fimm keppendur eftir sem berjast um fjögur laus sæti í úrslitaþættinum. Þau Guðrún Gunnarsdóttir og Felix Bergsson munu leiða fólk í allan sannleikann um keppendurna, taka á móti góðum gestum og sýna hvað fer fram á bak við tjöldina.

Frammistaða þessa geðþekka Borgfirðings hefur náð út fyrir landsteinana enda voru um sjö milljónir manna sem horfðu á síðasta þáttinn þar sem Ryan Star var sendur heim. Greinarhöfundur menningarhluta New York Times er með litla úttekt á keppendunum en þar er Magni á forsíðunni.

 

Þar lýsir greinahöfundur yfir gremju sinni með þá staðreynd að á meðan hæfileikalausir einstaklingar á borð við Kevin Federline og Paris Hilton skuli komast upp með að gefa út sorp þá þurfi hæfileikaríkt fólk á borð við þá keppendur sem eftir eru í Rock Star að ganga í gegnum þrettán vikna starfsviðtal.

Á heimasíðunni supernovafans.com er Magni enn með töluvert forskot á þá sem aðdáendur hljómsveitarinnar vilja sjá sem söngvara hljómsveitarinnar. Er hann með stuðning helming þeirra sextíu þúsund gesta sem heimsótt hafa síðuna en Dilana Robichaux er með rúmlega fimmtung atkvæða. Athygli hefur vakið að fjórir keppendur verði að öllum líkindum eftir í lokaþættinum og rennir það stoðum undir þær kenningar sem birst hafa á aðdáendasíðunni að karl og kona muni leiða hljómsveitina.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.