Erlent

Olíuforði BNA stækkar

Niðurstöður úr tilraunaborunum í Mexíkóflóa benda til þess að gríðarlegt magn af olíu og fljótandi gasi sé þar að finna. Bandaríska olíufyrirtækið Chevron, eitt þriggja fyrirtækja sem lét gera boranirnar, segir að þar sé að finna 3-15 þúsund milljón tunnur af olíu og fljótandi gasi, sem jafnast á við allt að helming núverandi olíuforða Bandaríkjanna.

Ekki er búist við að ódýr olía streymi á markaðinn á næstunni en hlutabréf í olíufyrirtækjunum þremur hafa hækkað töluvert eftir að fréttist af tilraunaborununum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×