Erlent

Lét maura bíta fót konu sinnar

 Maður hefur verið handtekinn fyrir að berja konu sína í höfuðið og halda síðan öðrum fótlegg hennar yfir bitmaurabúi, svo hún var bitin um eitt hundrað sinnum. Mildi var að önnur kona átti leið hjá og kom að hjónunum. Karlinn lagði þá á flótta. Konan mun hafa farið fram á skilnað við eiginmann sinn og hann brugðist svona við.

Lögregluþjónn sem fer með málið segist aldrei séð annað eins á tuttugu ára ferli.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×