Erlent

Norðlæg vídd í brennidepli

Gennadíj Khripel Rússneski þingmaðurinn (t.v.) segir Þingmannaráðstefnu Eystrasaltsráðsins hafa gegnt mikilvægu hlutverki við að byggja upp traust milli fyrrum fénda.
Gennadíj Khripel Rússneski þingmaðurinn (t.v.) segir Þingmannaráðstefnu Eystrasaltsráðsins hafa gegnt mikilvægu hlutverki við að byggja upp traust milli fyrrum fénda. MYND/Anton

Árlegri Þingmannaráðstefnu aðildarríkja Eystrasaltsráðsins lauk í Reykjavík í gær, en á hana mættu þingmenn ellefu þjóðlanda auk fulltrúa af Evrópuþinginu og þingum sjálfstjórnarsvæða og strandhéraða aðildarríkjanna. Meðal þess helsta sem rætt var á ráðstefnunni var framkvæmd hinnar svokölluðu Norðlægu víddar Evrópusambandsins, en í nafni þeirrar stefnu er unnið að ýmsu því milliríkjasamstarfi um mengunarvarnir og annað, sem varðar sameiginlega hagsmuni ríkjanna.

Félagsleg mismunun og hindranir á vinnumarkaði voru einnig ofarlega á baugi umræðunnar. Steingrímur J. Sigfússon alþingismaður tók þátt í umræðunum. Hann tjáði Fréttablaðinu að auk mengunar- og siglingaöryggismála væru þessi félagslegu mál að komast sterkar á dagskrá. Þau snertu meðal annars vandkvæði í tengslum við frjálst flæði vinnuafls frá fátækari löndunum austan megin við Eystrasaltið, en þau vörðuðu öll aðildarríkin, líka Ísland. Tengd þessu væru líka mál á borð við mansal á ungum konum frá löndunum í austri í vændi til ríkari landanna í vestri. Þessi mál verða meginþema ráðstefnunnar á næsta ári, en þá verður hún haldin í Berlín.

Steingrímur sagði gildi þessa vettvangs fyrir skoðanaskipti þingmanna frá umræddum löndum ekki síst felast í því að á honum sætu einnig fulltrúar Rússlands. Í gegnum Norðurlandasamstarfið, EES-samstarfið og fleiri stofnanir ættu íslenskir fulltrúar náin samskipti við sömu lönd og starfa saman innan Eystrasaltsráðsins, en það væri ein fárra evrópskra samstarfsstofnana þar sem Rússar tækju þátt á jafnréttisgrundvelli.

Gennadíj Khripel, þingmaður á rússneska sambandsþinginu sem á sæti í fastanefnd Þingmannaráðstefnunnar, tjáði Fréttablaðinu að þessi vettvangur hefði í fimmtán ára sögu sinni gegnt mikilvægu hlutverki við að brjóta ís tortryggninnar og byggja upp traust á milli þjóðanna í kringum Eystrasaltið, sem Járntjaldið skildi að á dögum kalda stríðsins.

Diana Wallis, þingmaður á Evrópuþinginu, vakti athygli á því samkomulagi sem í gildi er milli Grænlands og Evrópusambandsins um þann þátt Norðlægu víddarinnar sem snertir málefni norðurheimskautsins. Þannig bæri ekki einungis að líta á Norðlæga vídd ESB í tengslum við Eystrasaltið. Vandamál eins og loftslagsbreytingar og annar umhverfisvandi, sem væru áberandi á norðurslóðum, skiptu einnig máli fyrir Eystrasaltssvæðið. Hún bauð til þingmannaráðstefnu á vegum Evrópuþingsins um Norðlægu víddina í nóvember næstkomandi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×