Erlent

Gömul tölva veldur vanda

Natascha Kampusch
Natascha Kampusch

 Í húsi austurríska mannræningjans Wolfgang Priklopil, sem fyrirfór sér eftir að hin átján ára gamla Natascha Kampusch strauk úr haldi hans, fannst tölva sem er svo gömul að austurríska lögreglan er í mestu vandræðum með að rannsaka gögn úr henni.

Tölvan er af gerðinni Commodore 64, en slíkar tölvur nutu mikilla vinsælda fyrir um tveimur áratugum. Gerhard Lang, yfirmaður í rannsóknardeild austurrísku lögreglunnar, segir að erfitt verði að flytja gögnin yfir í nútímatölvu án þess að eitthvað glatist.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×