Lífið

Magni í úrslitaþátt Rock Star

Spennt. Þau Páll Óskar og Guðrún Gunnarsdóttir ásamt Eyrúnu Huld, unnustu Magna, en Icelandair hefur ákveðið að bjóða allri fjölskyldu söngvarans til Los Angeles þar sem hún mun fylgjast með söngvaranum í lokaþættinum.
Spennt. Þau Páll Óskar og Guðrún Gunnarsdóttir ásamt Eyrúnu Huld, unnustu Magna, en Icelandair hefur ákveðið að bjóða allri fjölskyldu söngvarans til Los Angeles þar sem hún mun fylgjast með söngvaranum í lokaþættinum.
Magni Ásgeirsson komst í úrslitaþátt Rock Star: Supernova eftir að öll atkvæði höfðu verið talin. Magni var um tíma meðal þriggja neðstu eins og allir hinir fimm þátttakendurnir en þegar allt kom til alls var hann ekki í hættu.

Söngvarinn frá Borgarfirði eystri verður því á sviðinu í næstu viku þegar í ljós kemur hver verður næsti söngvari rokkgrúppunnar Supernova. Sannkallað Rock Star-æði hefur gripið Íslendinga og hafa aldrei verið greidd jafn mörg atkvæði og aðfaranótt miðvikudags.

Hefur verið haft á orði að það hljóti að verða erfitt fyrir þá þrjá sem etja kappi við Magna að berjast við þrjú hundruð þúsund manna kolbrjálaða þjóð í Norður-Atlantshafi.

Magni fékk mjög góða dóma fyrir frammistöðu sína í tónleikaþættinum en hann flutti bítlalagið Back In the U.S.S.R og frumsamda lagið When the Time Comes. Magna áskotnaðist síðan sá heiður að syngja með Super­nova í atkvæðaþættinum og fékk mikið lófaklapp fyrir flutning sinn.

Vinsældir Magna ná hins vegar út fyrir landsteinana, því á uppboðsvefnum eBay er til sölu armband með mynd af söngvaranum sem og músarmotta og geta aðdáendur hans fest kaup á þeim fyrir lítinn pening en mottan kostar sex dollara, sem samsvarar 420 krónum, og armbandið er falt fyrir fimm dollara, eða 350 krónur.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.