Verðmætum stolið frá Rauða krossinum 24. október 2006 00:01 Verðmætum rafmagnstækjum var stolið úr aðstöðu Rauða krossins í Hveragerði aðfaranótt mánudags. MYND/stefán
Brotist var inn í aðstöðu Rauða krossins í Hveragerði í fyrrinótt og þaðan stolið munum að verðmæti nokkur hundruð þúsund krónur. Meðal annars var tveimur fartölvum stolið úr húsinu, skjávarpa, tveimur myndavélum, netsímatæki, Playstation-leikjatölvu og peningaveski sem í var lítilræði af peningum. Lögreglan á Selfossi, sem fer með rannsókn málsins, fékk tilkynningu um innbrotið rétt fyrir hádegi í gær en talið er að brotist hafi verið inn í húsið, sem er við Austurmörk 7, eftir miðnætti í fyrrinótt. Svanur Kristjánsson, varðstjóri í lögreglunni á Selfossi, segir engan vera grunaðan um innbrotið að svo stöddu. „Við erum að vinna að rannsókn málsins en höfum engan grunaðan um innbrotið. Það voru tekin úr húsinu umtalsverð verðmæti og við vonumst til þess að geta upplýst málið sem allra fyrst. Það er ljóst að á heildina litið nemur verðmæti þessara muna nokkrum hundruðum þúsunda.“ Jóhanna Róbertsdóttir, svæðisstjóri Rauða krossins á Suðurlandi og Suðurnesjum, segir þjófnaðinn úr húsnæðinu vera bagalegan fyrir Rauða krossinn. „Það er með ólíkindum að atburður af þessu tagi eigi sér stað. Við töpuðum ýmsum verðmætum en hluti þeirra er tryggður. Það var brotist inn á skrifstofuna mína; engu var stolið þaðan en ýmsir aðrir munir töpuðust, sem vonandi komast í leitirnar. Lögreglan hefur þegar yfirheyrt fólk sem gat gefið upplýsingar um það hvenær innbrotið hefði getað átt sér stað, en eftir því sem fram hefur komið var ekkert vitni að innbrotinu. Eigandi fartölvunnar sem var stolið, háskólanemi á þrítugsaldri, saknar fartölvu sinnar og þá sérstaklega gagna sem inni á henni voru og tengjast verkefnum sem hann hefur unnið að um skeið. Lögreglan á Selfossi biður alla þá sem upplýsingar geta veitt um málið að gefa sig fram eða hringja í síma 480-1010.
Innlent Mest lesið „Ég vil ekki sjá neina punga takk fyrir“ Tíska og hönnun Harry og Meghan ætla að flytja aftur til Bretlands Lífið Versluðu sígarettur af rússneskum sjómönnum: „Þetta var bara eins og gull“ Lífið Nicole birtir myndir úr Íslandsheimsókninni: „Við elskum ykkur Ísland!!“ Lífið Tekjuhæstu listamennirnir árið 2025 Lífið Sunneva Einars áfram langtekjuhæsti áhrifavaldurinn Lífið „Hver á eftir að vilja konu sem kúkar í poka?“ Lífið Þorsteinn Leó orðinn pabbi Lífið Jóhann Kristófer og Nadía Áróra slá sér upp Lífið Sögðu já þar sem ástarsagan hófst Lífið Fleiri fréttir Stiklusúpa: Sturlað leikjahaust og vetur í vændum Sjá meira