Benda á veiku blettina hjá fyrirtækjum 13. desember 2006 08:00 Björg Arnardóttir, lánasérfræðingur hjá Lánstrausti. MYND/Rósa
Á dögunum sendi Lánstraust hf. út bréf til fjölda fyrirtækja þar sem stjórnendum og forsvarsmönnum þeirra var bent á að tímasetning skila ársreiknings fyrir árið 2005, sem eru liðin, geti haft áhrif á lánshæfismat þeirra. Í bréfinu kemur fram að nýjar upplýsingar um fyrirtæki gefi réttari mynd af þeim og auki jafnframt líkurnar á réttum viðskiptakjörum. „Rökin fyrir skilaskyldu ársreikninga eru þau, að um nokkurs konar gagngjald sé að ræða fyrir hagræðið af því að fá að stunda atvinnurekstur með takmarkaðri ábyrgð. Aðrir eigi á móti þessu hagræði rétt á að fylgjast með rekstrinum," segir í frétt frá Lánstrausti. „Það sem hefur mest um að segja við útreikning á ógjaldfærni eru vanskilaskrá og ársreikningar. Því hærri sem líkurnar eru á ógjaldfærni þeim mun hærri áhættuflokki lendir fyrirtækið í.“ Sagði Björg Arnardóttir lánasérfæðingur hjá Lánstrausti. Á annað þúsund fyrirtækja verða ógjaldfærLánstraust gefur út tölfræðilegt áhættumat, LT-skor, sem metur líkur á ógjaldfærni íslenskra fyrirtækja til eins og þriggja ára og byggjast útreikningar meðal annars á upplýsingum úr ársreikningum.Með ógjaldfærni (probability of default) er átt við líkur á því að fyrirtæki verði gjaldþrota eða fái á sig árangurslaust fjárnám. Björg Arnardóttir, lánasérfræðingur hjá Lánstrausti, segir að LT-skorið spái því að 7,1 prósent af hlutafélögum og einkahlutafélögum verði ógjaldfær innan tólf mánaða, eða um 1.695 fyrirtæki.LT-skorið eykur öryggi í láns- og reikningsviðskiptum til muna því fyrirtæki geta hraðað og bætt ákvörðunartöku við lánveitingar til nýrra eða eldri viðskiptavina, dregið áhættu í láns- og reikningsviðskiptum og auðveldað ákvarðanir við greiðslukjör.Betri fyrirtæki hagnast á Basel IIÚtlánaáhætta er mæld með mörgum mælistikum. „Ein þeirra er notkun tölfræðilegs áhættumats. Matið gengur út á að meta hæfni viðskiptamanns til framtíðargreiðslugetu með það fyrir augum að lágmarka útlánatap í framtíðinni," segir Björg.Nýjar tilskipanir ESB sem nefndar eru einu nafni Basel II til einföldunar, voru staðfestar 14. júní 2006 og taka þær gildi um áramótin. Basel II regluverkið gerir fjármálafyrirtækjum kleift að reikna út eiginfjárkröfu útlána í samræmi við niðurstöðu innri matsaðferða. „Einstaklingar og fyrirtæki munu verða lánshæfismetin. „Betri" fyrirtæki munu líklega hagnast af innleiðingu þessara reglna, og eiga auðveldara með öflun lánsfjár og fá lánað á lægri kjörum."Það má segja að Basel II hafi sett leiðbeinandi reglur fyrir fyrirtæki í útlánastarfsemi til að meta útlán eftir líkum á ógjaldfærni. Fyrirtæki geta jafnframt fundið út þessar líkur með ytra mati líkt og LT-skori.Tíu áhættuflokkarReiknilíkanið, sem er undirstaða LT-skors, er hannað af norskum sérfræðingum hjá Creditinfo Decision, systurfélagi Lánstrausts. Björg segir að þegar þær breytur sem segja til um ógjaldfærni fyrirtækja eru rannsakaðar þá eru gögn um öll íslensk hlutafélög skoðuð fjögur ár aftur í tímann ásamt ógjaldfærnigögnum ári síðar. Þannig er fundið með línulegri aðhvarfsgreiningu (línuleg tengsl milli tveggja breyta) hvað er í raun sameiginlegt með þeim fyrirtækjum sem verða ógjaldfær.Þær upplýsingar sem hafa áhrif við útreikning á ógjaldfærni eru meðal annars upplýsingar úr ársreikningum, skiladagur til ársreikningaskrár Ríkisskattstjóra, vanskilaupplýsingar, starfsemi fyrirtækis, upplýsingar um stjórnarmenn og framkvæmdastjóra og aldur fyrirtækis. Reiknilíkanið setur viðkomandi fyrirtæki í einn af tíu áhættuflokkum. „Það sem hefur mest að segja við útreikning á ógjaldfærni eru vanskilaskrá og ársreikningar. Því hærri sem líkurnar eru á ógjaldfærni þeim mun hærri áhættuflokki lendir fyrirtækið í," bendir Björg á.Upplýsingar úr ársreikningi hafa ýmist jákvæð eða neikvæð áhrif þegar líkur á ógjaldfærni eru reiknaðar. Björg segir að félög með hátt hlutfall fastafjármuna af heildareignum séu ólíkleg til að verða ógjaldfær en fyrirtæki sem hafa hátt hlutfall veltufjármuna (viðskiptakrafna og vörubirgða) eru hins vegar líklegri til þess. Einnig hefur eiginfjárstaða fyrirtækis áhrif á góða niðurstöðu.Áhrif skila á ársreikning„Þá hafa skil á ársreikningi áhrif á niðurstöðu. Tölur okkar sýna að 20 prósent af þeim fyrirtækjum, sem hafa ekki skilað inn ársreikningi árið áður, verða ógjaldfær innan tólf mánaða, hlutfall ógjaldfærra er mun lægra þegar skoðuð eru fyrirtæki sem hafa skilað ársreikningi eða um þrjú prósent," bætir Björg við.Vanskilaupplýsingar eru einnig notaðar við útreikning LT-skors en þar hefur fjöldi færslna úr vanskilaskrám Lánstrausts og aldur vanskilafærslna áhrif. „Helmingur fyrirtækja með þrjár vanskilafærslur árið 2004 urðu ógjaldfær innan 12 mánaða. Þá var eftirtektarvert að fyrirtæki með þrjá vanskilafærslur, sem hafa skilað inn ársreikningi, eru mun ólíklegri til að verða ógjaldfær en sams konar fyrirtæki sem hafa ekki skilað ársreikningi."Vanskil stjórnarmanna eða framkvæmdastjóra hafa einnig áhrif á ógjaldfærni fyrirtækja og til lækkunar á áhættuflokkun viðkomandi fyrirtækis.Fyrirtæki er einnig líklegra til að verða ógjaldfært ef stjórnarmenn þess eru á rekstrarsöguskrá, en þá hafa þeir verið tengdir gjaldþrota fyrirtækjum með ákveðnum hætti. Ennfremur hafa þættir á borð við starfsemi fyrirtækis áhrif, enda fylgir mismikil áhætta einstaka atvinnugreinum. Aldur fyrirtækis skiptir máli að sögn Bjargar. „Áhætta vex þar til fyrirtæki ná þriggja ára aldri en minnkar eftir það. Áhættan er tvöfalt meiri hjá eins árs fyrirtæki en tíu ára gömlu félagi."
Birtist í Fréttablaðinu Héðan og þaðan Mest lesið Gervihjónabönd: Að eiga vinnueiginmann eða vinnueiginkonu Atvinnulíf Heiðrún Lind kaupir í Sýn Viðskipti innlent Eldri stjórnendur sætti sig oftar við slæma hegðun og frammistöðu Viðskipti innlent Ráðin forstöðukona markaðsmála hjá Olís Viðskipti innlent „Óhóflegt gjald“ fyrir símanotkun í Bretlandi heyri fljótt sögunni til Viðskipti innlent Elín Tinna nýr framkvæmdastjóri 66°Norður á Íslandi Viðskipti innlent Farþegum til Íslands fjölgaði um 21 prósent Viðskipti innlent Framkvæmdastjóri Olís: „Ekki hleypa henni að græjunum“ Atvinnulíf Fyrsta íslenska grænkera ostagerðin í hættu Viðskipti innlent Hryllingssögur og dæmi: „Slúbbertar halda heilu stofnunum í gíslingu“ Atvinnulíf Fleiri fréttir „Óhóflegt gjald“ fyrir símanotkun í Bretlandi heyri fljótt sögunni til Elín Tinna nýr framkvæmdastjóri 66°Norður á Íslandi Heiðrún Lind kaupir í Sýn Ráðin forstöðukona markaðsmála hjá Olís Eldri stjórnendur sætti sig oftar við slæma hegðun og frammistöðu Farþegum til Íslands fjölgaði um 21 prósent Ekkert tillit tekið til aðstæðna og ljóst að vöruúrval minnki Brutu lög við söluna á Íslandsbanka og greiða yfir 60 milljónir í sektir Pakkarnir séu langt frá því að vera sambærilegir Síminn má dreifa efni Sýnar Húrra opnar þriðju verslunina á höfuðborgarsvæðinu Segir félaginu skylt að skipta sér af „sorgarvegferð“ Play Seldu samheitalyf við hvítblæði og HIV fyrir hundruð milljóna Ráðin nýr fagstjóri hjá Íslandsstofu Greiddu eina krónu fyrir Mannlíf Aukið samstarf opni á fleiri tengimöguleika til vesturstrandar Bandaríkjanna Bein útsending: Sjálfbærnidagur Landsbankans Tekur við starfi forstjóra Samkaupa Hætta með spilakassa á Ölveri Bein útsending: Ársfundur Grænvangs - Samstarf til framtíðar Flytja Emmessís í Grafarvog 78 sagt upp í þremur hópuppsögnum Tveir nýir framkvæmdastjórar hjá Póstinum Segir „vanstilltan“ starfsmann Icelandair kominn úr skotgröfunum Ráðinn nýr fjárfestingastjóri Ísafold Capital Partners Þrjár ráðnar til Krafts Bein útsending: Morgunfundur Svansins: Harðar kröfur – Auðvelt val Opnuðu 64 ný hjúkrunarrými á Hrafnistu í Kópavogi Kaupa bræðurna út: „Við vorum sammála um að vinna ekki lengur saman“ Flestir ánægðir með söluna á Íslandsbanka Sjá meira