Dúkkurnar voru strippklúbbur fræga fólksins 15. desember 2006 11:00 Robin Antin stofnaði danshópinn Pussycat Dolls sem varð frægur á einni nóttu fyrir eggjandi útfærslur af lögum frá árunum 1960 til 1970
Hvað eiga Charlize Theron, Cameron Diaz og Drew Barrymore sameiginlegt? Fyrir utan að vera leikkonur í Hollywood hafa þær allar dansað og sungið með stúlknahljómsveitinni Pussycat Dolls. Þetta fyrirbæri hefur tröllriðið vinsældalistum hér heima og erlendis með sykursætum popp-smellum á borð við Button þar sem Snoop Dogg dillar sér við fáklæddar söngkonurnar og Don't Cha ásamt rapparanum Busta Rhymes. Fáir vita hins vegar nákvæm deili á þessum stúlkum og reyndar er hljómsveitin hvorki ný af nálinni né skipuð upprunalegum meðlimum heldur var hún stofnuð árið 1995 af danshöfundinum Robin Antin. Upphaflega var hugmyndin sú að dansa fyrir gesti í Las Vegas og fékk Antin vinkonur sínar, þær Linh le og Christinu Applegate, til að stíga nokkur spor. Vinkonurnar urðu fljótlega mjög vinsælar fyrir eggjandi útfærslur á þekktum slögurum frá árunum 1960 til 1970 enda voru þær iðulega klæddar í korsilett eða annan efnislítin fatnað. Svo fór að endingu að hinn þekkti bar fræga fólksins, Viper-Room, fékk þær til að troða upp reglulega á fimmtudagskvöldum og fóru kvenkynsstjörnur kvikmyndaborgarinnar fljótlega að vilja fækka fötum ásamt stúlkunum. Í hópinn bættust þær Kasey Campbell, Kiva Dawson, Erica Gudis og Lindsley Allen en engin af þeim er hluti af því æði sem ríkir í kringum sveitina núna. Carmen Elektra var lengi vel forsprakki stúlknanna en gafst upp þegar leggja átti tónlistarheiminn að fótum sér. „Ég hafði einfaldlega ekki efni á því," sagði Carmen. Árið 2003 urðu síðan miklar breytingar þegar upptökustjórarnir Jimmy Iovine og Ron Fair tóku þær að sér og breyttu þeim í R n'B sveit. Nicole Scherzinger, fyrrum söngkona Eden's Crush, tók við hljóðnemanum og með henni fylgdu þær Carmit Bachar, Kemberly Wyatt, Ashley Roberts, Jessica Sutta og Melody Thornton. Hljómsveitin hefur verið tilefnd til Grammmy-verðlauna og hefur hitað upp fyrir tónlistarmenn á borð við Black Eyed Peas en hún mun næst ferðast með söngkonunni Christinu Aguilera. Þar með er þó ekki sagt að allir séu sáttir við hinar þokkafullu hreyfingar sem mörgum gagnrýnendum þykir minna meira á súludans en tónlist. Þannig voru þær sektaðar fyrir of kynlífstengdar athafnir og kynferðislega tilburði á sviði í Malasíu og lét menningarmálaráðherra landsins hafa það eftir sér að líkamstjáning stúlknanna hefði verið ósiðleg. Hópurinn hefur jafnframt verið gagnrýndur fyrir að geta hreinlega ekki sungið enda hefur Nicole sungið alla helstu slagara þeirra og hafa óvildarmenn þeirra sagt hinar stúlkurnar vera bara til sýnis. Þær vísa þessum orðrómi hins vegar á bug og því til staðfestingar benda þær á að bæði Melody Thornton og Carmit Bachar séu með sólóferil í undirbúningi. Nicole Scherzinger syngur flesta slagara sveitarinnar en hljómsveitarmeðlimir vísa því á bug að þær geti ekki allar sungið. . Carmen Var lengi vel leiðtogi Pussycat Dolls og dansaði með þeim á Viper Room. . Glyðrur eða söngkonur? Pussycat Dolls hafa verið gagnrýndar fyrir að vera meiri stripparar en tónlistarmenn.fréttablaðið/GettyImages .
Mest lesið Vann ekki úr nauðguninni og skaddaðist á mænu Lífið Kim mældist með „litla heilavirkni“ Lífið Fagnaði 35 árum með stæl í Kólumbíu Lífið Þetta er fólkið sem fær listamannalaun 2026 Menning Það skrítnasta á djamminu: Amfetamín inni á klósetti og fólk að ríða Menning Stjörnulífið: Ólétta og ást í 23 ár Lífið Radiohead frestar tónleikum sínum í Köben Lífið „Besta byrjun á desember sem hægt var að hugsa sér“ Lífið Nýtt lúxushótel við svarta strönd býður upp á kyrrð og fegurð Lífið samstarf Er hægt að njóta kynlífs þrátt fyrir mikla áfallasögu? Lífið Fleiri fréttir Þau hlutu verðlaun Dags íslenskrar tónlistar Bein útsending: Hver hlýtur viðurkenningu á Degi íslenskrar tónlistar? Bjallaði í eitt virtasta tónskáld Kasakstan Patti Smith heldur tónleika í Hörpu og Hofi Reggí-risinn Jimmy Cliff allur Lifandi tónlist beint í æð allan ársins hring Hlýja og nánd heima og uppi á sviði Gæsahúð gekk á milli gesta á Stuðmönnum Lög sem mönnum yrði slaufað fyrir í dag Frumsýning á Vísi: Fögnuðu nýjum lífstíl Lítið mál að trylla lýðinn kasólétt Fagnar fimmtugsafmæli með fyrstu tónleikum Ampop í átján ár Tók málin í eigin hendur og stofnaði nýja metal-hátíð á Selfossi Una Torfa heillaði baðgesti upp úr sundskónum Áhrifamikill óður til Grindvíkinga Sjá meira