Tónlist

Afhent í 12. sinn 25. janúar

Íslensku tónlistarverðlaunin verða afhent í Þjóðleikhúsinu þann 25. janúar nk.

Íslensku tónlistarverðlaunin voru veitt í fyrsta sinn árið 1993. Stefán Hjörleifsson, Eiður Arnarsson og félagsmenn úr rokkdeild FÍH stóðu að hátíðinni, tilnefnt var í fjórtán flokkum og hlaut hljómsveitin Todmobile flest verðlaun. Fyrsta árið voru veitt verðlaun í flokki popp- og rokktónlistar, ári síðar bættist djass við og árið 1995 voru fyrst veitt verðlaun í flokki sígildrar og samtímatónlistar. Verðlaunin hafa verið í stöðugri þróun síðan. Í ár eru verðlaunin alls sautján, auk heiðursverðlauna, hvatningarverðlauna Samtóns og útflutningsverðlauna Loftbrúar sem og vinsældaverðlauna sem veitt eru í samvinnu við visir.is og tonlist.is.

Samtónn hefur verið ábyrgðaraðili Íslensku tónlistarverðlaunanna frá árinu 2002. Samtónn skipar fjögurra manna stjórn verðlaunanna sem sér um að ráða framkvæmdastjóra. Framkvæmdastjóri Íslensku tónlistarverðlaunanna á árunum 2001- 2004 var Einar Bárðarsson en núverandi framkvæmdastjóri er Berglind María Tómasdóttir.

Sjónvarpað hefur verið frá verðlaunaafhendingunni undanfarin ár og hefur áhorf mælst yfir 50%.

Athöfnin hefst klukkan 20:00

Nánari upplýsingar er að finna hér á Vísi og á tonlist.is






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.