Lífið

Sign með síðustu tónleikana á Íslandi í bili

Hljómsveitin Sign kemur fram á sumartónleikaröð Reykjavík Grapevine og Smekkleysu fimmtudaginn 15. júní nk. Sign spila órafmagnað í Smekkleysubúðinni, Laugavegi 59 kjallara, kl. 17.00. Frítt er inn á tónleikana sem eru öllum opnir.

Um kvöldið kemur Sign síðan fram í fullum skrúða á  skemmtistaðnum Amsterdam ásamt Pan og Truckload of Steel.  Aldurstakmark er 18 ára og aðgangseyrir er 800 krónur.

Síðustu tónleikar  sveitarinnar á Íslandi í bili verða föstudaginn 16. júní Tryggvaskála á Selfossi. Tónleikarnir eru fyrir alla aldurshópa og hefjast klukkan 20.00. Miðaverð er 1000 krónur.

Á Laugardaginn halda Sign-liðar síðan til Bretlands þar sem þeir koma fram á Middlesborough tónleikahátíðinni 18. júní ásamt því að spila á Water Rats í London 19. júní.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.