2500 miðar í boði á tónleika Nick Cave 21. júní 2006 12:30
Miðasala fyrir tónleika Nick Cave, sem fram fara í Laugardalshöll 16. september nk., hefst fimmtudaginn 29. júní í verslunum Skífunnar, BT Akureyri, Egilstöðum og Selfossi og á www.midi.is. Um er að ræða sitjandi tónleika og verða aðeins seldir miðar í númeruð sæti. Búið er að skipta höllinni upp í tvö svæði; sal og stúku. Miðaverð í salnum er 6.500 krónur (auk 440 kr miðagjalds), miðaverð í stúku er 5.500 krónur (auk 380 kr miðagjalds). Aðeins 2.500 miðar eru í boði á tónleikana. Það er Hr. Örlygur sem stendur fyrir tónleikum Nick Cave á Íslandi í samvinnu við Icelandair og Rás 2. Nick Cave kemur fram í Laugardalshöll ásamt hljómsveit sem skipuð er Bad Seeds meðlimunum Martyn P. Case (bassi), Jim Scavunos (trommur) og áðurnefndum Warren Ellis (fiðla). Nick Cave er maðal virtustu tónlistarmanna samtímans og á að baki tímamótaverk bæði eins síns liðs og með hljómsveitunum Birthday Party og The Bad Seeds. Hann hélt tvenna eftirminnilega tónleika hér á landi fyrir fjórum árum. Þar sem miðarnir á fyrri tónleikana seldust upp á 50 mínútum voru skipulagðir sérstakir aukatónleikar sem einnig seldist upp á skömmum tíma. Nick Cave var síðast staddur hérlendis í fyrra við frumsýningu uppfærslu Vesturports á Woyzeck, en hann samdi tónlistina við verkið ásamt Bad Seeds meðliminum Warren Ellis. Þeir félagar sendu nýlega frá sér breiðskífuna The Proposition sem inniheldur tónlist úr samnefndri kvikmynd. Nick Cave á að baki fjölmörg ódauðleg meistaraverk. The Firstborn is Dead (1985), Your Funeral, My Trial (1986) og Tender Pray (1988) eru á meðal helstu verka Nick Cave and the Bad Seeds frá níunda áratugnum. Sveitin náði nýjum hæðum í vinsældum með Let Love In (1992) og Murder Ballads (1996) þar sem PJ Harvey og Kylie Minogue syngja með Cave á plötunni í lögunum "Henry Lee" og "Where the Wild Roses Grow" sem er meðal allra vinsælustu laga Nick Cave. Murder Ballads var fylgt eftir með einlægri, hrárri og fallegri The Boatman's Call (1997) sem þrátt fyrir að ná ekki sömu vinsældum og fyrri tvær skífur Bad Seeds fékk einróma lof gagnrýnenda og þykir með sterkustu verkum Nick Cave. Eftir að útgáfu ljóðaplötunar Secret Life the Love Song (1999) snéri Nick aftur með Bad Seeds á No More Shall We Apart (2001) sem var vel tekið af plötukaupendum og gagnýnendum og í kjölfarið fylgdu Nocturama (2003) og hin tvöfalda Abbatoir Blues/The Lyre of Orpheus (2004). Árið 2000 flutti meistari Johnny Cash lag Cave "The Mercy Seat" á plötu sinni American III: Solidarity Man og saman tóku þeir síðar upp lögin "I'm so Lonesome I Could Cry" og "Cindy" sem komu út á breiðskífum Cash; American IV: The Man Comes Around og Johnny Cash: Unhearted. Nick Cave hefur skrifað fjölmörg ljóð, leikrit og kvikmyndahandrit sem meðal annars má finna í bók hans Kings Ink frá 1988. Hann hefur auk þess leikið í nokkrum kvikmyndum m.a. Wings of Desire og Ghosts...of the Civil Dead í leiksjórn Tim Wenders og Johnny Suede þar sem Brad Pitt var í aðalhlutverki. Fjölmagar safnplötur, tónleikaplötur og DVD diskar með tónlist og myndverkum Nick Cave og Bad Seeds hafa verið gefin út í gegnum tíðina. The Best of Nick Cave and the Bad Seeds frá 1988 inniheldur vinsælustu lög Nick Cave og hljómsveitar hans og á B-Sides & Rarities sem kom út í fyrra má finna 56 lög sem áður erfitt hefur verið að ná í til þessa og/eða komið út á smáskífum og verið í hinum ýmsu kvikmyndum. Í byrjun ársins kom út DVD diskurinn Road to God Knows Where/Live at the Paradisco sem inniheldur sögufræga heimildarmynd frá tónleikaferðalagi sveitarinnar um bandaríkin og tónleikaupptöku frá tónleikum hennar í Amsterdam árið 1992. Frekari upplýsingar má fá á eftirfarandi vefsíðum:http://en.wikipedia.org/wiki/Nick_Cavewww.nickcaveandthebadseeds.comwww.nick-cave.com
Lífið Menning Mest lesið Verður yngsta skvettan í þingflokki Sjálfstæðismanna Lífið Fann ástina á Tinder og endaði í Texas Lífið Allir og amma þeirra senda kónginum afmæliskveðju Lífið „Ég sef í gallabuxum“ Tíska og hönnun Krakkatía vikunnar: Jónas, þjóðardýr og einmanalegt áhugamál Lífið Fréttatía vikunnar: Dua, Danir og Carpenter Lífið Vesturbæingar kvöddu sögufræga bensínstöð Lífið Þegar tónlistin heltók lögmanninn Lífið Allt að verða klárt fyrir Sjómannadaginn í Reykjavík Lífið Hringdi strax í pabba og sagði honum frá Bond-leiknum Lífið Fleiri fréttir Krakkatía vikunnar: Jónas, þjóðardýr og einmanalegt áhugamál Verður yngsta skvettan í þingflokki Sjálfstæðismanna Vesturbæingar kvöddu sögufræga bensínstöð Allt að verða klárt fyrir Sjómannadaginn í Reykjavík Allir og amma þeirra senda kónginum afmæliskveðju Fann ástina á Tinder og endaði í Texas Þegar tónlistin heltók lögmanninn Fréttatía vikunnar: Dua, Danir og Carpenter Anthony Head er látinn Emilíana Torrini selur einbýlishús á 250 milljónir „Aldrei of seint að gera hlutina“ „Þetta skiptir okkur mjög miklu máli“ Einmanalegt áhugamál fjögurra íslenskra stráka Krónprinsessan inn og út af sjúkrahúsi „Við höfum oftar en einu sinni fundið hann í fjöru“ „Núna stjórna stelpur landinu og strákar klippa hár“ Uppgötvuð á götum Barcelona Hvað veistu um... Snæfellsnes? Leikritið eigi sérstaklega erindi nú Manst þú eftir þessum sígildu sumarleikjum? Matthildur Margrét og Sigurður Hrannar eiga von á barni „Við notum þetta orð yfir sundið, kaffið, og ástina okkar“ Getur hermt fullkomlega eftir tugum fugla Myndaveisla: Tárin streymdu þegar Áslaug kvaddi Valin versti ljósmyndari heims Tíu hlutir sem þú vissir ekki um Hildi Björnsdóttur Vegglistaverkið í Vesturbæ stækkað Stjörnufans í eins árs afmæli „Rosaleg skömm fyrir mig á sínum tíma“ Ágústa Eva setur 170 milljónir á einbýlishúsið í Hveragerði Sjá meira