Lífið

Markaðsdagur í Bolungarvík

Hinn árlegi Markaðsdagur í Bolungarvík, verður haldinn með fjölda sölubása og glæsilegri skemmti dagskrá  laugardaginn 1. júlí n.k. kl: 13:00 - 18:00.

Stefnt er að því að Markaðsdagurinn verði stærri og meiri en nokkru sinni fyrr, enda hefur Markaðsdagurinn í Bolungarvík vakið mikla athygli víðsvegar um landið og farið vaxandi ár frá ári.

Á markaðnum verður selt nánast allt milli himins og jarðar, gestir geta skemmt sér á milli þess sem þeir versla eða prútta á sölubásunum því frábær skemmtidagskrá hefur verið skipulögð með landsins bestu skemmtikröftum. Þar ber helst að nefna hljómsveitina Greifana, Spaugstofan sendir sína menn á staðinn og hljómsveitin Myst sem slegið hefur í gegn undanfarið leikur frábær lög. Auk þessa munu margir aðrir snillingar stíga á stokk sem kynntir verða næstu daga með dreifibréfi, á markadsdagur.is og á bolungarvik.is

Á staðnum verður mikill fjöldi leiktækja fyrir yngri kynslóðina til að hafa gaman af, þar má nefna Go-Kart bíla, risa hoppukastala, fjarstýrða báta, og margt fleira. Auk alls þessa verður sýnd tískusýning, keppt verður í hinni árlegu sultukeppni, línuskauta- og hjólreiðakeppni, kassabílarallý, púttkeppni og margt, margt fleira.

Dagskrá helgarinnar hefst föstudagskvöldið 30. júní þar sem allir sameinast um að grilla á risagrilli í Hregnasa gryfju þar sem brekkusöng verður stjórnað af leynigest við brakandi varðeld. Að brekkusöng loknum haldur þeir sem eru orðnir 16 ára til dansleiks með Greifunum í Víkurbæ, þeir sem eldri eru fara í pöbb bæjarins, Kjallarann, þar leika þetta kvöld þekktir Bolvíkingar, þeir Jónmundur Kjartansson, sem er þekktur fyrir störf sín innan lögreglunnar ásamt Kristjáni Jóni Guðmundssyni.

Að loknum vel heppnuðum markaðsdegi á laugardaginn verður stórdansleikur með hljómsveitinni Greifunum í Víkurbæ.

Helgin verður síðan toppuð með stóra vatnsdeginum í Sundlaug Bolungarvíkur þar sem allir taka þátt í risa vatnsslag í öllum fötunum með vatnsbyssum, slöngum, vatnsblöðrum og fleiru að vopni. Að loknum vatnsslagnum fara allir í sund og síðan í hina frábæru heitu potta til að jafna sig eftir átök helgarinnar.

Þess má geta að enn er hægt að bóka sölubása í síma 862-2221 eða í gegnum vefinn www.markadsdagur.is en þar er að finna allar nánari upplýsingar um dagskrá helgarinnar.

Bolvíkingar, Vestfirðingar sem og landsmenn allir eru hér með innilega boðnir velkomnir á Markaðsdaginn í Bolungarvík segir í tilkynningu frá aðstandandum Markaðsdagsins.

 



 

 

 

 

 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.