Lífið

Líf í Eden um helgina

Mikið verður um að vera í Eden um helgina og um að gera fyrir alla að fara í bíltúr austur fyrir fjall.
Mikið verður um að vera í Eden um helgina og um að gera fyrir alla að fara í bíltúr austur fyrir fjall.
Það að verður mikið um að vera fyrir fjölskyldufólk um helgina í Eden. Trúðurinn Eddi hefur heldur betur slegið í gegn, og hefur nú samið dans- og söngatriði í samstarfi við risa Amazon páfagaukaparið. Einnig er aldrei að vita nema Orkuveitu risarækjurnar og kanínurnar slái á létta strengi.

Á laugardaginn verður Bylgjan á svæðinu frá 13-16 og gefur hlustendum ís og jafnvel blómvendi. Svo mæta Birta og Bárður úr Stundinni okkar kl. 16 og sprella fyrir yngstu kynslóðina. Því er um að gera að mæta á staðinn og bjóða fjölskyldunni upp á ís og góða skemmtun.

Einnig verða tilboð á plöntum og völdum vörum alla helgina, ástæðulaust er hafa áhyggjur af veðrinu því það er alltaf hlýtt í Eden.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.