Lífið

Flís á Gljúfrasteini

Flís spilar á Gljúfrasteini á sunnudaginn kl 16:00
Flís spilar á Gljúfrasteini á sunnudaginn kl 16:00

Á stofutónleikum Gljúfrasteins, næstkomandi sunnudag, verður skipt úr klassíska gírnum yfir í jazz gírinn þegar Flís tríóið kemur sér fyrir í stofunni. Sem fyrr hefjast tónleikarnir klukkan 16.00 og aðgangseyrir er aðeins 500 krónur.



Flís piltar eru líklegir til alls enda eru þeir með frumlegustu spunadrengjum og gjörningagaldramönnum sem litið hafa dagsins ljós á þessari litlu eyju. Á Gljúfrasteini mun Flís reyna að ná sambandi við Halldór sjálfan og verða nýjar víddir kannaðar í stofu skáldsins.

Flís tríóið hefur unnið með stórum hópi listamanna allt frá undarlegum trúbadorum á landsbyggðinni til tónleikahljómsveita á alheimsvísu. Þeir hafa aldrei kvikað frá markmiði sínu í tónlist sem er að viðhalda hinni barnslegu sköpunargleði og ná til allra sem þurfa á neistum hljóðanna að halda.

Tríóið var stofnað árið 1998 þegar þeir Davíð, Valdi og Helgi kynntust í Tónlistarskóla F.Í.H. Í fyrstu léku þeir hinn hefðbundna stíl jazztónlistarinnar af kappi en fljótlega fóru þeir félagar að blanda hinum ýmsu stílum og stefnum inn í tónlist sína. Það má segja að hinir ólíklegustu hlutir séu soðnir saman í eina risastóra matarmikla hljóðsúpu sem verður sífellt bragðmeiri og stærri hjá þeim drengjum. Árið 2005 gáfu þeir út plötuna Vottur hjá 12Tónum og stuttu eftir það gáfu þeir út tvær fyrstu plöturnar í "LE Series" -seríunni, þar sem einblínt er á ferska tónlist af hvers kyns toga. Plöturnar eru: Live at Kaffi Hljómalind (le series001) og Live at Rvk Jazzfestival with Liudas Mockunas (le series002).






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.