Lífið

Íslendingar á námskeið til London

Anthony Robbins er einn fremsti lífsþjálfari heims og metsöluhöfundur.
Bækurnar hans fjalla m.a. um leiðtoga, viðskipti og stjórnun og hefur hann haldið fjölda fyrirlestra fyrir æðstu leiðtoga heims og hlotið viðurkenningar fyrir viðskiptavit sitt.
Anthony Robbins er einn fremsti lífsþjálfari heims og metsöluhöfundur. Bækurnar hans fjalla m.a. um leiðtoga, viðskipti og stjórnun og hefur hann haldið fjölda fyrirlestra fyrir æðstu leiðtoga heims og hlotið viðurkenningar fyrir viðskiptavit sitt.
Helgina 29. september - 2. október 2006 verður haldið í London fjögurra daga ofurnámskeiðið UNLEASH THE POWER WITHIN með Anthony Robbins. Yfir 400 Íslendingar hafa sótt fyrri námskeið og eru allir þátttakendur sammála um að þessi helgi sé nánast ólýsanleg. Nú er stefnt að fjórðu ferðinni á námskeiðið með Robbins og mun englar.is aðstoða þá framsæknu Íslendinga sem vilja kynnast þessari einstöku upplifun. Þetta er frábært tækifæri fyrir alla þá sem vilja efla líf sitt og starf.

Anthony Robbins er einn fremsti lífsþjálfari heims og metsöluhöfundur.

Bækurnar hans fjalla m.a. um leiðtoga, viðskipti og stjórnun og hefur hann haldið fjölda fyrirlestra fyrir æðstu leiðtoga heims og hlotið viðurkenningar fyrir viðskiptavit sitt.

UPW snýst um að kenna þátttatökendum m.a að brjótast úr viðjum vanans, yfirbuga ótta og takmarkanir í lífinu, ná markmiðum og átta sig á eigin löngunum, breyta draumum í raunveruleika, mynda og viðhalda samböndum, tileinka sér áætlanir þeirra sem hafa náð hámarksárangri og í raun gjörbreyta sínu lífi til hins betra. Námskeiðið er sett upp þannig að þátttakendur læra að eyða öllu því sem hefur aftrað þeim frá því að taka næsta skref í lífinu. Þátttakendur læra að nýta sína innri orku til að m.a.

ganga berfættir yfir glóandi kol - og það á fyrsta degi!

Eins og áður bjóða englar.is miða á góðu verði á frábærum stað í ráðstefnuhöllinni á sérstöku viðhafnarsvæði. Rétt er að benda á að miðafjöldi er takmarkaður og borgar sig því að staðfesta tímanlega.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.