Erlent

Foreldrarnir ekki í nokkrum vafa

Mynd/AP
Foreldrar stúlku sem hvarf fyrir átta árum í Austurríki segjast ekki í neinum vafa um að 18 ára stúlka sem fannst í garði nærri Vín í gær sé dóttir þeirra. Móðir stúlkunnar segir þau hafa umsvifalaust þekkt hana aftur af útliti hennar, fasi og talanda, jafnvel þó þau hafi ekki sést frá því stúlkan var 10 ára. DNA-rannsóknir munu innan skamms taka af allan vafa um það hver stúlkan er en lögregla er ekki í neinum vafa um að stúlkan sé sú sem hún segist vera. Maðurinn sem hún segir að hafi rænt sér og læst inni í 8 ár framdi sjálfsmorð í gær þegar fréttist af því að stúlkan hefði sloppið úr prísundinni.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×