Erlent

Skutu niður georgíska herþyrlu

Aðskilnaðarsinnar í Suður-Ossetíu skutu í dag niður herþyrlu stjórnarhersins í Georgíu, að sögn rússnesku fréttastofunnar Interfax. Suður-Ossetía er hérað í Georgíu, en aðskilnaðarsinnar hafa stjórnað héraðinu með með stuðningi rússneskra stjórnvalda um árabil. Interfax hefur eftir fulltrúa í uppreisnarher Suður-Osseta að þyrlan hafi verið skotin niður með loftvarnabyssum. Hún hafi komið niður í skógi vöxnum fjöllum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×