Erlent

Sprengjuárás við kaffihús í Tyrklandi

Tveir létust og sjö særðust í sprengingu í bænum Catak í suðausturhluta Tyrklands í gær. Talsmaður lögreglunnar segir að sprengjan, sem komið hafði verið fyrir fyrir utan kaffihús, hafi verið fjarstýrð. Tilkynnt hafði verið um torkennilegan pakka og þegar lögreglan var komin á vettvang sprakk sprengjan. Annar þeirra sem lést í sprengingunni var lögreglumaður. Grunur leikur á að kúrdískir uppreisnarmenn hafi staðið á bak við ódæðið, að sögn tyrknesku lögreglunnar, en enginn hefur lýst yfir ábyrgð á því.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×