Erlent

Hermaður NATO beið bana eftir árás samherja

Einn hermaður NATO lést og nokkrir særðust í árás samherja þeirra í Suður-Afganistan í morgun. Hermennirnir áttu í átökum við vígamenn úr röðum talíbana og höfðu kallað eftir aðstoð frá lofthernum. Tvær herþotur Atlanthafsbandalagsins voru sendar á vettvang en fyrir mistök skutu þær á hermenn úr röðum bandalagsins með fyrrgreindum afleiðingum. Þá létust að minnsta kosti fjórir óbreyttir borgarar í sjálfsmorðsárás í Kabúl, höfuðborg Afganistans, í morgun.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×