Erlent

Bílsprengja fellir tvo í Suður-Líbanon

Að minnsta kosti tveir eru látnir og einhverjir særðir eftir að sprengja sprakk í bifreið yfirmanns innan líbönsku leyniþjónustunnar fyrir stundu. Ekki er vitað hvort hann sé annar hinna látnu. Sprengingin varð í bænum Rmeileh, skammt frá borginni Sidon í Suður-Líbanon. Ekki er vitað hver stóð á bak við tilræðið en enginn hefur lýst yfir ábyrgð á því.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×