Erlent

Tyrkir senda hermenn til Líbanons

Ákvörðun tyrkneska þingsins mótmælt.
Ákvörðun tyrkneska þingsins mótmælt. MYND/AP

Tyrkneska þingið samþykkti í dag að senda nokkur hundruð hermenn til Líbanons til liðs við friðargæslulið Sameinuðu þjóðanna þar.

Það voru rúmlega þrjú hundruð þingmenn að rúmlega fimm hundruð sem greiddu tillögu þess efnis atkvæði sitt en einfaldan meirihluta þurfti aðeins til að tryggja samþykki hennar.

Margir múslimar í Tyrklandi eru andvígir þessu og óttast að liðið þjóni aðeins hagsmunum Ísraela og Bandaríkjamanna og hermenn þurfi þá að skjóta á múslima.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×