Erlent

Dæmd til dauða fyrir heróínsmygl

Áfrýjunardómstóll í Indónesíu hefur dæmt fjögur áströlsk ungmenni til dauða fyrir tilraun þeirra til að smygla heróíni frá indónesísku ferðamannaeynni Balí til Ástralíu á síðasta ári.

Ástralirnir fjórir eru á aldrinum 19 til 23ja ára og voru upphaflega dæmdir í lífstíðarfangelsi en sá dómur var mildaður í 20 ár fyrir hæstarétti. Nú hefur hins vegar fallið sá dómur að öll fjögur skuli leidd fyrir aftökusveit og skotin. Ástralski utanríkisráðherrann sagði hins vegar að ríkisstjórnin muni fara fram á mildun dómsins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×