Erlent

Óttast að tugir hafi látist í sprengingum á Indlandi

Óttast er að minnst tuttugu og fimm hafi týnt lífi og fjölmargir særst í fjórum sprengingum á vestur hluta Indlands í morgun. Ekki er fullvíst hvað olli sprengingunum en grunur leikur á að um sprengjuárásir sé að ræða.

Manmohan Singh, forsætisráðherra, greindi frá því fyrr í vikunni að leyniþjónustur hefðu fengið vísbendingar um yfirvofandi hryðjuverkaárásir í landinu. Öryggisgæsla hefur verið mikil síðan hundrað áttatíu og sex manns fórust í sprengjuárásum á farþegalestir í Mumbai í júlí síðastliðnum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×