Erlent

Útgöngubann eftir sprengingar

Minnst þrjátíu týndu lífi og rúmlega eitt hundrað og tuttugu særðust í tveimur sprengingum í vesturhluta Indlands í morgun. Minnst tuttugu eru sagðir í lífshættu.

Ekki er fullvíst hvað olli sprengingunum en grunur leikur á að um sprengjuárásir hafi verið að ræða. Útgöngubann hefur verið sett á og viðbótar lögreglulið sent á vettvang. Öryggisgæsla hefur verið mikil á Indlandi síðan eitt hundrað áttatíu og sex manns fórust í sprengjuárásum á farþegalestir í Mumbai í júlí síðastliðnum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×