Erlent

Staðfest að Ísraelar hafi aflétt hafnbanni

MYND/AP

Fulltrúar friðargæsluliðs Sameinuðu þjóðanna í Líbanon staðfestu í dag að Ísraelar hefðu aflétt hafnbanni sínu á landið í morgun. Flugbanni var aflétt í gær. Flug- og hafnbann hefur verið í gildi síðan í júlí þegar átök Ísraela og Hizbollah-skæruliða í Suður-Líbanon hófust. Beðið var með að aflétta hafnbanninu þar til floti á vegum gæsuliðsins væri kominn á svæðið. Rúmlega þrjú þúsund hermenn á vegum Sameinuðu þjóðanna eru nú í Suður-Líbanon en þeir gætu talið fimm þúsund í næstu viku. Áætlað er að þeir verði fimmtán þúsund.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×