Lífið

Skímó á NASA í kvöld

Strákarnir í Skítamóral munu spila fyrir dansi á skemmtistaðnum Nasa, í kvöld laugardaginn 9. sept. Peyjarnir eru í miklu stuði þessa dagana því stutt er síðan þeir spiluðu í Reykjanesbæ fyrir gesti Ljósanætur, en talið er að um 40.000 manns hafi lagt leið sína á Ljósanótt þetta árið.

Þó svo það sé ekki pláss fyrir svo marga á Nasa er gert ráð fyrir að stemmingin verði engu lík.

Húsið opnar kl. 23.00.

Það er búið að vera nóg að gera hjá strákunum í Skítamóral í allt sumar og hafa þeir komið fram á hverri stórhátíðinni á fætur annarri um allt land. Nú er loksins komið tækifæri fyrir borgarbúa að skella sér á ball með þeim og ætti enginn að láta það fram hjá sér fara.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.