Aukatónleikar sunnudaginn 24.september 10. september 2006 00:09
Vegna gríðarlegrar eftirspurnar, fjölda áskorana og ótrúlegrar pressu hefur verið ákveðið að bæta við aukatónleikum með Björgvini Halldórssyni og Sinfóníuhljómsveit Íslands. Eins og kunnugt er seldust fyrri tónleikarnir upp á mettíma fyrir skömmu, þegar tæplega 3000 miðar ruku út á aðeins 90 mínútum. Augljóslega sat gríðarlega stór hópur fólks þá eftir með sárt ennið og síðan þá hafa dunið á okkur fyrispurnirnar sem aldrei fyrr varðandi fleiri miða og aukatónleika. Þar sem um risavaxin atburð er að ræða og um 200 manns sem koma að tónleikunum hefur það tekið sinn tíma að láta aukatónleikana verða að veruleika. Það er því sérstakt ánægjuefni að geta staðfest þá hér með. Aukatónleikarnir munu fara fram sunnudaginn 24. september kl. 20:00, daginn eftir fyrri tónleikana. Sem fyrr verður aðeins selt í númeruð sæti og hefur Laugardalshöll verið skipt upp í tvö verðsvæði:Salur: 7.500 + miðagjald Stúka: 6.500 + miðagjald Miðasalan hefst föstudaginn 15. september, kl. 10:00 á öllum sölustöðum. Miðasalan fer fram á midi.is, í verslunum Skífunnar og verslunum BT á Akureyri, Egilsstöðum og Selfossi. Í ljósi þeirrar miklu spennu sem hefur myndast fyrir þessum einstaka tónlistarviðburði og hversu hratt miðarnir ruku út síðast, þarf varla að hafa mörg orð um mikilvægi þess að áhugasamir hafi hraðar hendur og tryggi sér miða strax. Að gefnu tilefni skal það tekið skýrt fram að ekki er fræðilegur möguleiki á því að bæta við fleiri tónleikum; þegar miðasala hefst í næstu viku er sannarlega um allra síðasta tækifæri fyrir fólk til að tryggja sér aðgang að einum stærsta og glæsilegasta atburði sem haldin hefur verið hérlendis. Bakhjarlar tónleikanna eru Alcan í Straumsvík í tilefni af 40 ára afmæli ISAL og Bylgjan - brautryðjandi í 20 ár. Nánari upplýsingar á www.bravo.is
Lífið Menning Mest lesið Stukku fram af kletti ofan í Goðafoss Lífið Hilmir Snær svarar gagnrýnendum Menning Tóku í gegn fjögur hundruð fermetra einbýli í Hafnarfirði Lífið Sturluð skvísulæti í stórafmæli Tíska og hönnun Theodór Elmar og Móheiður ástfangin Lífið 50+: Að hætta að vera þjónustumiðstöð fullorðinna barna Áskorun Vaknaði við öskur móður sinnar og vissi strax hvað hafði gerst Lífið Linda Dröfn og Tótla sjóðheitt par Lífið Tom Brady og Candice Swanepoel slá sér upp Lífið Stjörnulífið: Laumugifting í helli Lífið Fleiri fréttir Hvað veistu um… pitsur? Star Trek-leikarinn Walter Koenig látinn Chris Brown á skilorði Ný skjöl: Var túlkur Kennedys á mála hjá KGB? Tóku í gegn fjögur hundruð fermetra einbýli í Hafnarfirði Tom Brady og Candice Swanepoel slá sér upp Theodór Elmar og Móheiður ástfangin Stjörnulífið: Laumugifting í helli Stukku fram af kletti ofan í Goðafoss Er hægt að treysta aftur eftir framhjáhald? Linda Dröfn og Tótla sjóðheitt par „Ég var alveg skelfingu lostinn“ Vaknaði við öskur móður sinnar og vissi strax hvað hafði gerst Krakkatía vikunnar: Illmenni, bofs og Einar Áskell ADHD-ið geri Jón Gnarr fullkominn fyrir opið samband Blóð og hryllingur í grænmetisdeildinni Draugar og ófreskjur taka yfir Húsdýragarðinn Smáhestar flúðu úr verslunarmiðstöð Skrifborð Megasar eins og hjá skurðlækni Þurfti að vara syni sína við eftir umfjöllun um meintan eltihrelli Fór á skeljarnar á toppi hæsta tinds Fréttatía vikunnar: MS, þungunarpróf og glaumgosi Dóttir ísdrottningar fetar í fótspor móðurinnar Top Gun- og Alien-leikari látinn Hvað veistu um… Karl Bretakonung? Skaddaður á höndunum og allavega þrír dagar eftir Færsluóður miðaldra höfundur: „Ég man ekki eftir að hafa gengið í þessar grúppur“ „Ég get ekki leikið lengur. Ég get ekki lesið“ Óleyst íslensk ráðgáta: Veist þú svarið? Grenjaði, veipaði og keyrði stanslaust Sjá meira