Erlent

Ekki fleirum bjargað úr gullnámu í Síberíu

25 námamenn hafa nú fundist látnir í gullnámu í Síberíu. Eldur kviknaði í námunni á fimmtudaginn og við það losnuðu eiturgufur.

Eldurinn var slökktur nokkrum klukkustundum eftir að hann kviknaði en þá sátu 33 námamenn fastir í námunni. 8 var bjargað í gær.

Yfirvöld á svæðinu segja gáleysislega meðferð á logsuðutæki ástæðu þess að eldurinn kviknaði.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×