Erlent

Fleiri Frakkar til Líbanons

MYND/AP

Um 100 franskir friðargæsluliðar komu til Líbanons í morgun. Þeir bætast í hóp friðargæsluliða sem eru þar fyrir á vegum Sameinuðu þjóðanna. 13 skriðdrekar og önnur hergögn voru einnig flutt til Líbanons.

Frakkar fara nú fyrir gæsluliðinu auk þess sem þeir leggja til ýmis hergögn og hermenn. Áætlað er að gæsluliðið hjálpi líbanska hernum meðal annar við að gæta landamæranna að Ísrael en þar hafa átök milli ísraelskra hermanna og Hizbollah-skæurliða kostað mörg hundruð mannslíf.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×