Erlent

Ókeypis hárskurður á Vesturbakkanum

MYND/AP

Rakarar og hárskerar í Ramallah og Betlehem á Vesturbakkanum hafa gripið til þess ráðs að bjóða ókeypis hárskurð í einn sólahring. Þetta var gert í gær til að styðja við bakið á opinberum starfsmönnum heimastjórnar Palestínumanna sem ekki hafa fengið laun sín greidd í marga mánuði. Fjölmargir starfsmenn hafa lagt niður vinnu vegna þessa. Alþjóðlegum fjárstuðningi við heimastjórn Palestínumanna var að mestu hætt þegar Hamas-samtökin tóku við völdum þar sem þau hafa ekki hafnað ofbeldisverkum og viðurkennt Ísraelsríki.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×