Erlent

Mannskæð sprengjuárás í Tyrklandi

10 létust og 14 liggja sárir eftir sprengjuárás í suðausturhluta Tyrklands í gærkvöldi. Á meðal látinna eru 7 börn.

Sprengjan sprakk nálægt barnaskóla í borginni Diyarbakir og hefur enginn enn lýst yfir ábyrð á árásinni. Kúrdar eru í meirihluta í borginni.

15 hafa látist í sprengingum í Tyrklandi á síðustu vikum og tugir slasast.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×