Lífið

Brúðkaup myndi kosta 15 milljónir á ári

Það er dýrt að vera frú Jörgensen. Alexandra prinsessa, sem var gift Jóakim prinsi af Danmörku er komin með nýjan kærasta og er samband þeirra orðið opinbert. Sá heitir Martin Jörgensen. Þau eru í sambúð og menn velta því eðlilega fyrir sér hvort þau gangi í hjónaband.

Lagalega er ekkert því til fyrirstöðu, en ef þau gera það missir Alexandra bæði prinsessutitilinn og, ekki síður, skattfrelsi af þeim launum sem hún fær sem fyrriverandi eiginkona Jóakims og móðir tveggja prinsa. Hjónaband myndi kosta þau Alexöndru og Martin um fimmtán milljónir króna á ári.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.