Innlent

Segir stjórnendur KB Banka í felum

Danska Ekstra Bladet segir að stjórnendur Kaupþings banka hafi farið í felur eftir skrif blaðsins í gær um það sem blaðið kallar skattasniðgöngukerfi bankans. Í dag birti blaðið frétt um danskan lögfræðing sem starfar með Íslendingum og er sagður viðriðinn mál um peningaþvætti.

Lögfræðingurinn, sem heitir Jeff, var í blaðinu í gær sagður vera lykilmaður í útrás íslenskra kaupsýslumanna. Haft var eftir honum að hann hafi unnið með Björgólfsfeðgum og Magnúsi Þorsteinssyni.

Fyrri opna af tveimur í Ekstrabladet í dag fer í að sýna ríkmannlegt líf Jeffs, sem ferðast um heiminn á einkaþotu. Auk þess er farið yfir baráttu Jeffs við rússneskan kaupsýslumann um eignarhald í rússnesku símafyrirtæki.

Á næstu opnu er það saga af langri sakaskrá og svikum föður Jeffs.

En það sem snýr mest að Íslendingum í skrifum blaðsins í dag er annar danskur lögfræðingur og meðeigandi Jeffs, Claus Abildstrøm.

Claus er sagður vera stofnandi eða stjórnarformaður í mörgum þekktum fyrirtækjum í eigu Íslendinga. Og hvort blaðið koma til með að sýna fram á tengsl milli Íslendinga og peningaþvættis verður tíminn að leiða í ljós, því Ekstrabladet ætlar sér að draga umfjöllunina á langinn.

En það sem kemur fram í dag er að danski lögfræðingurinn Claus Abildstrøm hafi borið vitni í máli sem rekið var í Sviss árið 2004 og ári síðar á Bresku Jómfrúreyjunum, sem tengdist eignarhaldi fyrirtækis meðeiganda hans Jeff.

Einnig kemur fram að Claus hafi verið meðeigandi í fyrirtæki sem hafi verið notað til að leyna eignarhaldi í tengslum við sölu á stórum hlut í rússnesku símafyrirtæki. Blaðið hefur þessar upplýsingar úr alþjóðlegri skýrslu endurskoðanda hjá Pricewater House Coopers. Haft er eftir þeim endurskoðanda að það að leyna eignarhaldi fyrirtækja sé lýsandi fyrir peningaþvætti.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×