Málþing í minningu Jörundar Hilmarssonar 24. nóvember 2006 16:44 MYND/Stefán
Íslenska málfræðifélagið og Málvísindastofnun Háskóla Íslands gangast fyrir málþingi um orðsifjafræði og söguleg málvísindi í minningu dr. Jörundar Hilmarssonar, málfræðings og heiðursræðismanns Litháens á Íslandi, á morgun í fyrirlestrarsal Þjóðminjasafns Íslands. Jörundur var dósent í málvísindum við Háskóla Íslands og hefði orðið sextugur hinn 15. mars síðastliðinn en hann lést langt um aldur fram 13. ágúst 1992, aðeins 46 ára að aldri. Fram kemur í tilkynningu frá aðstandendum málþingsins að Jörundur hafi lagt stund á indóevrópska samanburðarmálfræði við Óslóarháskóla og lokið doktorsprófi í þeirri grein frá háskólanum í Leiden í Hollandi 1986. Í málvísindanámi sínu lagði Jörundur sig meðal annars eftir litháísku, og stundaði meðal annars nám í Vilníus í Litháen 1971-72 og kom þangað oft eftir það. Þegar Íslendingar höfðu viðurkennt sjálfstæði Litháa árið 1991 skipaði Vytautas Landsbergis Jörund Hilmarsson heiðursræðismann Litháens á Íslandi í þakklætisskyni fyrir störf Jörundar í þágu Litháens. Á ráðstefnunni á morgun munu níu málfræðingar - allir samstarfsmenn Jörundar eða nemendur - halda erindi um orðsifjafræði eða söguleg málvísindi.
Lífið Mest lesið Stukku fram af kletti ofan í Goðafoss Lífið Hilmir Snær svarar gagnrýnendum Menning Tóku í gegn fjögur hundruð fermetra einbýli í Hafnarfirði Lífið Sturluð skvísulæti í stórafmæli Tíska og hönnun Theodór Elmar og Móheiður ástfangin Lífið 50+: Að hætta að vera þjónustumiðstöð fullorðinna barna Áskorun Vaknaði við öskur móður sinnar og vissi strax hvað hafði gerst Lífið Linda Dröfn og Tótla sjóðheitt par Lífið Tom Brady og Candice Swanepoel slá sér upp Lífið Stjörnulífið: Laumugifting í helli Lífið Fleiri fréttir Hvað veistu um… pitsur? Star Trek-leikarinn Walter Koenig látinn Chris Brown á skilorði Ný skjöl: Var túlkur Kennedys á mála hjá KGB? Tóku í gegn fjögur hundruð fermetra einbýli í Hafnarfirði Tom Brady og Candice Swanepoel slá sér upp Theodór Elmar og Móheiður ástfangin Stjörnulífið: Laumugifting í helli Stukku fram af kletti ofan í Goðafoss Er hægt að treysta aftur eftir framhjáhald? Linda Dröfn og Tótla sjóðheitt par „Ég var alveg skelfingu lostinn“ Vaknaði við öskur móður sinnar og vissi strax hvað hafði gerst Krakkatía vikunnar: Illmenni, bofs og Einar Áskell ADHD-ið geri Jón Gnarr fullkominn fyrir opið samband Blóð og hryllingur í grænmetisdeildinni Draugar og ófreskjur taka yfir Húsdýragarðinn Smáhestar flúðu úr verslunarmiðstöð Skrifborð Megasar eins og hjá skurðlækni Þurfti að vara syni sína við eftir umfjöllun um meintan eltihrelli Fór á skeljarnar á toppi hæsta tinds Fréttatía vikunnar: MS, þungunarpróf og glaumgosi Dóttir ísdrottningar fetar í fótspor móðurinnar Top Gun- og Alien-leikari látinn Hvað veistu um… Karl Bretakonung? Skaddaður á höndunum og allavega þrír dagar eftir Færsluóður miðaldra höfundur: „Ég man ekki eftir að hafa gengið í þessar grúppur“ „Ég get ekki leikið lengur. Ég get ekki lesið“ Óleyst íslensk ráðgáta: Veist þú svarið? Grenjaði, veipaði og keyrði stanslaust Sjá meira