Fyrstur með Platínupötu 20. desember 2006 14:11 Söluhæstur fyrir þessi jól
Vinsældir tónleika Björgvins og Sinfóníuhljómsveitar Íslands virðast engan endi ætla að taka. Aðsóknarmet var slegið þegar 9.000 manns keyptu miða á tónleikana í september og nú er Björgvin á góðri leið með að stinga samferðarmenn sína af í plötusölunni fyrir jólin og slá fleiri met. Platan kom út 25. nóvember og hafa hvorki fleiri né færri en 17.000 eintök selst nú þegar og tæp vika er enn til jóla. Platan hefur selst í um 8.500 eintökum í sérsölu, til fyrirtækja og annara aðila og um 8.500 eintökum í heildsölu til verslana. Þetta þýðir að Björgvin er lang söluhæsti tónlistarmaðurinn þetta árið, en eina platan sem er að seljast í viðlíka magni er fimmfalda safnplatan "100 íslensk jólalög". (Þar sem Björgvin flytur reyndar einnig nokkur lög.) Um einstaklega veglega útgáfu er að ræða sem inniheldur bæði geislaplötu og DVD mynddisk. Það þýðir að mynddiskurinn er sá langsöluhæsti sem hefur komið út fyrr og síðar á Íslandi. Þetta þýðir að auki að Björgvin er lang fyrstur allra íslenskra listamanna þetta árið, og jafnvel sá eini, til að ná platínusölu, en til þess þarf 10.000 eintök. Björgvin veitti platínuplötunni viðtöku nú fyrr í kvöld við hátíðlega athöfn við verslun Skífunnar í Smáralind. Fulltrúar Sinfóníuhljómsveitar Íslands og Karlakórs Fóstrbræðra, sem spiluðu stóra rullu í tónleikunum, fengu einnig afhenta platínuplötu. FRÁBÆRIR DÓMAR Velgengni plötunnar ætti engum að koma á óvart þegar skoðaðir eru dómar um hana. Páll Baldvin Baldvinsson hjá Fréttablaðinu og Arnar Eggert Thoroddsen hjá Morgunblaðinu gáfu báðir útgáfunni fjórar stjörnur og eru ekki sparir á lýsingarorðin. Er þeim tíðrætt um hágæði útgáfunnar, þá augljósu vandvirkni og miklu vinnu sem liggur að baki hennar og metnaðinn sem þarf til að ráðast út í slíkt verkefni. Á Björgvin mikið hrós skilið fyrir að sýna stórhug og gera miklar kröfur til síns og samstarfsmanna sinna. AÐ LOKUM Björgvin Halldórsson á 40 ára starfsafmæli á næsta ári og ljóst er að um þessar mundir er ferill hans að ná hámarki. Á síðast ári sló sýning hans, Ár og öld, á Broadway, öll aðsóknarmet og í kjölfarið var gefin út þreföld safnplata sem seldist í tugþúsundum eintaka og sló sölumet. Og nú, innan við ári síðar, kemur Bo með aðra plötu, sem selst best allra á Íslandi. Það er því greinilegt að íslenska þjóðin fær ekki nóg af Bo. Björgvin er með fjölda verkefna í farvatninu og nokkuð öruggt að næstu ár verða ekki síður gjöful fyrir ástsælasta söngvara þjóðarinnar en síðustu misseri hafa verið.
Mest lesið Formleg spá og ítarleg greining á keppendum kvöldsins Lífið Komast ekki áfram nema þeir séu á skjánum Lífið Tom Cruise stökk úr þyrlu með myndavél Íslendinga Bíó og sjónvarp „Mökkurinn var þéttur og við fórum í gegnum hann“ Lífið Egill í SuitUp keypti glæsiíbúð undir fasteignamati Lífið María Birta og Elli orðin tveggja barna foreldrar Lífið Íslendingarnir gleymdu mikilvægu hráefni á lokadeginum Lífið Skrýtið að sjá mannfjöldann syngja með á íslensku Lífið Sögulegt parhús í Hlíðunum Lífið Innlit í best skipulögðu íbúðina á Selfossi Lífið Fleiri fréttir „Maður er í elífu straffi sem tónlistarmaður, getur ekki gert neitt annað“ Óhræddir við raunverulegar tilfinningar Kaleo með tónleika á Íslandi í fyrsta sinn í áratug Davíð í Kaleo bjó til flöskutrommusett Fimmtán ára og gefur út frumsamda plötu Elti ástina til Íslands „Þetta er allt partur af plani hjá guði“ Eyddi unglingsárunum inni í þvottahúsi Gefa út sína fyrsta plötu síðan 2001 Þrumustuð þegar lag Barnamenningarhátíðar var frumflutt Sækir innblásturinn í rússnesku ræturnar Sjá meira