Ný smáskífa á leiðinni 15. janúar 2007 09:30 Dr. Spock hefur haft hægt um sig um nokkurt skeið vegna fötlunar Finna.fréttablaðið/hrafn thoroddsen mynd/hrafn thoroddsen
Ný smáskífa frá Dr. Spock er væntanleg í búðir upp úr helgi. „Hún hefur verið í dálítilli biðstöðu, en hún er til og allt klárt,“ sagði Guðfinnur Karlsson, betur þekktur sem Finni, söngvari rokksveitarinnar. „Ég er fatlaður bæði andlega og líkamlega og á leiðinni í skurðaðgerð, þannig að við höfum verið í smá pásu. Við höfum ekkert getað komið fram eða séð fram á að geta fylgt smáskífunni eftir út af því,“ sagði Finni. Hann lofar þó að Spockliðar snúi tvíefldir aftur til leiks að aðgerðinni afstaðinni. „Smáskífan heitir The Incredible Truth of Dr. Zoega, og er svona í framhaldi af Dr. Phil. Það eru fjögur lög á henni, til dæmis Skítapakk sem var í fyrsta sæti á X-inu í einhverjar sex vikur,“ sagði Finni. „Við sömdum lögin saman þegar við vorum í Ekvador, það er svona ekvador-mannætu-þema á disknum öllum,“ bætti hann við. Að sögn Finna á að vera hægt að kaupa smáskífuna eina og sér, eða í tvöföldu albúmi með Dr. Phil. „Þessi er með bleikum hanska, en Dr. Phil með gulum. Það virðist vera orðið eitthvað þema hjá okkur,“ sagði Finni.
Mest lesið Formleg spá og ítarleg greining á keppendum kvöldsins Lífið „Mökkurinn var þéttur og við fórum í gegnum hann“ Lífið Skrýtið að sjá mannfjöldann syngja með á íslensku Lífið Pussy Riot og Páll Óskar troða upp til stuðnings flóttafólki Lífið Fögur fljóð og töfrandi stund í Haukadal Lífið Aðal gellur landsins saman í epískri hestaferð Lífið „Ég þurfti að breyta hugsun, hegðun og tali“ Áskorun „Og ég varð snargeðveikur“ Lífið „Ég varð stjörf af hræðslu“ Lífið Ný hugsun í heimi brúnkuvara Lífið samstarf Fleiri fréttir „Maður er í elífu straffi sem tónlistarmaður, getur ekki gert neitt annað“ Óhræddir við raunverulegar tilfinningar Kaleo með tónleika á Íslandi í fyrsta sinn í áratug Davíð í Kaleo bjó til flöskutrommusett Fimmtán ára og gefur út frumsamda plötu Elti ástina til Íslands „Þetta er allt partur af plani hjá guði“ Eyddi unglingsárunum inni í þvottahúsi Gefa út sína fyrsta plötu síðan 2001 Þrumustuð þegar lag Barnamenningarhátíðar var frumflutt Sækir innblásturinn í rússnesku ræturnar Sjá meira