Tónlist

Fimm sveitir hita upp

Þungarokkssveitin bandaríska er á leiðinni til Íslands.
Þungarokkssveitin bandaríska er á leiðinni til Íslands.

Hljómsveitirnar Mínus og Changer hita upp á fyrri tónleikum bandarísku þungarokkssveitarinnar Cannibal Corpse á Nasa hinn 30. júní. Forgarður Helvítis, Momentum og Severed Crotch hita upp á síðari tónleikunum, sem verða kvöldið eftir.

Mínus tók nýverið upp plötu í Los Angeles sem kemur út á næstunni. Ekki er langt síðan sveitin hitaði upp fyrir Incubus á tónleikum í Laugardalshöllinni.

Miðaverð á hvora tónleikana er 2.500 krónur og hefst miðasala á fimmtudaginn klukkan 11.00. Tuttugu ára aldurstakmark er á fyrri tónleikunum en ekkert á þeim síðari.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.