Tónlist

Fjölgun hjá Motion Boys

Hljómsveitin Motion Boys hefur fengið góðan liðsauka.
Hljómsveitin Motion Boys hefur fengið góðan liðsauka.

Viddi, hljómborðsleikari Trabant, Bjössi, trommuleikari Mínus, og Tobbi úr Jeff Who? hafa gengið til liðs við hljómsveitina Motion Boys.

Sveitin gaf nýverið út stuttskífu með lögunum Hold Me Closer to Your Heart og Waiting to Happen og hyggur á útgáfu sinnar fyrstu plötu síðar á árinu.

Hingað til hafa meðlimir Motion Boys verið tveir, eða þeir Birgir Ísleifur Gunnarsson, sem var áður í Byltunni, og Árni Rúnar, sem er einnig í Hairdoctor. Að sögn Birgis Ísleifs hefur stefnan verið sett á fyrstu tónleikana í sögu sveitarinnar í vor. „Við erum ekki innilokaðir í neinum stíl og erum ekki hræddir við að prófa nýja hluti,“ segir Birgir um tónlist Motion Boys.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.