Tónlist

Færeysk hátíð í annað sinn

Eivör kemur fram á Atlantic Music Event á Nasa laugardaginn 31. mars.
Eivör kemur fram á Atlantic Music Event á Nasa laugardaginn 31. mars.

Færeysk tónlistarhátíð verður haldin á Nasa á laugardaginn 31. mars undir nafninu Atlantic Music Event. Undanfarin ár hefur hún verið haldin reglulega í Færeyjum og Danmörku við góðar undirtektir.

Fram koma Eivör Pálsdóttir, Teitur, Högni Lisberg, Brandur Enni og hljómsveitin Gestir. Eru þau öll í fremstu röð færeyskra tónlistarmanna í dag og eru Eivör og Brandur til að mynda bæði að vinna að gerð nýrra platna.

„Þetta var haldið í fyrsta sinn á Íslandi í fyrra. Þá vorum við með sex færeyskar hljómsveitir og eina íslenska og það gekk mjög vel," segir Ásgeir Eyþórsson skipuleggjandi. „Færeyingum finnst mjög mikilvægt að geta komið til Íslands af og til og leyft fleirum að heyra tónlistina sína.

 

brandur enni Brandur Enni er að vinna að nýrri plötu sem kemur út síðar á árinu.

Flestir af þeim hafa náð einhverjum árangri erlendis og margir hverjir í tengslum við þessa hátíð," segir hann. „Teitur er líklega stærsta alþjóðlega nafnið í dag þótt Eivör sér þekktust hérna á Íslandi."

Miðaverð á hátíðina er 2.200 krónur og fer forsala aðgöngumiða fram í Skífunni og á midi.is.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.