Tónlist

Veglegir tónleikar

Kvennakór Kópavogs flytur fjölbreytta efnisskrá í Salnum í tilefni afmælisins.
Kvennakór Kópavogs flytur fjölbreytta efnisskrá í Salnum í tilefni afmælisins.

Kvennakór Kópavogs fagnar fimm ára afmæli sínu með tónleikum í Salnum í dag. Kórinn var stofnaður af Natalíu Chow Hewlett. Fjöldi kórkvenna hefur verið breytilegur þessi fimm ár, síðustu misserin um 35-45 konur.

Kórinn hefur keppt að því frá stofnun að taka þátt í kórakeppninni Musica Mundi í Búdapest og í apríl láta kórfélagar þann draum sinn rætast og ferðast þangað austur til að reyna sig við raddir meginlandsins.

Tvennir tónleikar hafa verið haldnir flest starfsárin og hefur kórinn oftast staðið einn að þeim. Efnisskrá kórssins hefur verið fjölbreytt, til dæmis þjóðlög frá ýmsum löndum, kikjutónlist, bítlalög og negrasálmar. Kórinn hefur líka sungið á fjölmörgum tungumálum öðrum en íslensku eins og ensku, ítölsku, latínu, þýsku, kínversku og ungversku.

Undirleikari kórsins frá upphafi hefur verið Julian Hewlett en tónleikunum á sunnudag fær kórinn einnig liðstyrk, söngkonan Regína Ósk Óskarsdóttir mun syngja einsöng með kórnum auk þess sem ungar raddir Englakórsins hljóma.

Tónleikarnir á sunnudag hefjast kl. 14.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.