Ekki í túnfætinum heima 2. apríl 2007 06:15 niðurstaða kosninganna í Hafnarfirði, um breytt deiliskipulag vegna stækkunar álversins í Straumsvík, hefur verið hyllt sem sigur fyrir lýðræðið og náttúruvernd. Auðvelt er að taka undir fyrra sjónarmiðið en minni innistæða er að öllum líkindum fyrir fagnaðarlátum umhverfisverndarsinna og álversandstæðinga. Í því samhengi er rétt að minna á að Hafnfirðingar voru á laugardag ekki að kjósa um hvort stöðva beri virkjanir eða stóriðjuframkvæmdir á Íslandi, heldur fyrst og fremst um hvort ætti að heimila tvöföldun á umfangi álverksmiðju Alcan í túnfætinum hjá þeim. Núverandi stærð bygginga Alcan í Straumsvík er um 140 þúsund fermetrar og er óhætt að segja að þær séu ekki mikið augnayndi, eins og liggur nánast í hlutarins eðli; kerskálar verða seint tilnefndir til arkitektúrverðlauna. Ef stækkunaráform Alcan hefðu náð fram að ganga hefðu bæst við 120 þúsund fermetrar af verksmiðjubyggingum í Straumsvík. Það er á við tvö stykki af verslunarmiðstöðinni Smáralind til að setja þann fjölda af fermetrum í eitthvert samhengi. Burtséð frá því hvaða starfsemi á að fara fram á athafnasvæði af slíkri stærðargráðu, hlýtur það að vera sjálfsagður réttur íbúa sem eiga heimili í næsta nágrenni við það, að hafa eitthvað um málið að segja. Og sú varð einmitt niðurstaða bæjaryfirvalda í Hafnarfirði. Stækkun álversins var lögð í dóm Hafnfirðinga og uppskeran er söguleg. Íbúakosning þar sem um 80 prósent þeirra sem voru á kjörskrá mættu á kjörstað og greiddu atkvæði um hvernig þeir vilja að verði umhorfs í Hafnarfirði í framtíðinni. Það var ánægjulegt að fylgjast með því hvernig pólitískir fulltrúar í bæjarstjórn Hafnarfjarðar héldu sig til hlés í aðdraganda kosninganna. Sum mál eru í eðli sínu síður flokkspólitísk en önnur. Skipulag er sannarlega eitt af þeim. Að kosningunum loknum er ljóst að álverið mun fara úr Straumsvík miklu fyrr en ef stækkunin hefði verið samþykkt. Þegar sá dagur rennur upp er ekkert sem hindrar lengur að byggðin haldi áfram að teygja sig eftir strandlengjunni í átt að Reykjanesbæ eins og er æskilegast. Um afstöðuna til frekari virkjana, stóriðjuuppbyggingu og umhverfisvernd verður svo kosið í vor. Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Jón Kaldal Mest lesið Sögufölsun í heimildarþætti RÚV — Svör óskast Jóna Benediktsdóttir,Hjörtur Hjartarson,Katrín Oddsdóttir,Kjartan Jónsson,Kristín Erna Arnardóttir,Sigríður Ólafsdóttir,Þórir Baldursson Skoðun Óframseljanlegt DAGA-kerfi Kári Jónsson Skoðun Halldór 23.11.2024 Halldór Fellur helsti stuðningsmaður menningarmála af þingi? Magnús Logi Kristinsson Skoðun „Við andlát manns lýkur skattskyldu hans“ Þórður Gunnarsson Skoðun Eru aðventan og jólin kvíða- eða tilhlökkunarefni? Guðlaug Helga Ásgeirsdóttir Skoðun Sjálfstæðismenn boða víst skattalækkanir á þá efnamestu Haukur V. Alfreðsson Skoðun Gæti aukin einkavæðing og skólaval í grunnskólakerfinu bætt námsárangur og aukið jafnrétti? Jón Páll Haraldsson,Linda Heiðarsdóttir,Ómar Örn Magnússon Skoðun Viltu borga 200 þús á mánuði eða 600 þús á mánuði af íbúðinni? Hildur Þórðardóttir Skoðun Dýrkeyptur aðgangur Stella Guðmundsdóttir Skoðun
Sögufölsun í heimildarþætti RÚV — Svör óskast Jóna Benediktsdóttir,Hjörtur Hjartarson,Katrín Oddsdóttir,Kjartan Jónsson,Kristín Erna Arnardóttir,Sigríður Ólafsdóttir,Þórir Baldursson Skoðun
Gæti aukin einkavæðing og skólaval í grunnskólakerfinu bætt námsárangur og aukið jafnrétti? Jón Páll Haraldsson,Linda Heiðarsdóttir,Ómar Örn Magnússon Skoðun
Sögufölsun í heimildarþætti RÚV — Svör óskast Jóna Benediktsdóttir,Hjörtur Hjartarson,Katrín Oddsdóttir,Kjartan Jónsson,Kristín Erna Arnardóttir,Sigríður Ólafsdóttir,Þórir Baldursson Skoðun
Gæti aukin einkavæðing og skólaval í grunnskólakerfinu bætt námsárangur og aukið jafnrétti? Jón Páll Haraldsson,Linda Heiðarsdóttir,Ómar Örn Magnússon Skoðun