Samkeppni um nýtt myndband 25. apríl 2007 10:00 Aðdáendur Bjarkar fá tækifæri til að gera myndband við lagið Innocence, af plötunni Volta.
Aðdáendur Bjarkar Guðmundsdóttur verða í lykilhlutverki við gerð myndbands við lagið Innocence. Lagið er það fyrsta af nýrri plötu Bjarkar, Volta, sem gert verður tónlistarmyndband við. Á aðdáendasíðunni bjork.com er efnt til samkeppni, þar sem fólki gefst færi á að gera myndband við lagið. Samkvæmt heimasíðunni er hugmyndin komin frá Björk sjálfri, og það verður jafnframt hún sem velur besta myndbandið. Höfundur þess fær svo að vinna með söngkonunni við að leggja lokahönd á verkið og feta þar með í fótspor ekki óþekktari manna en Spike Jonze og Michel Gondry. Á síðunni má nálgast myndir af listaverkinu sem Björk klæðist á umslagi plötunnar. Þar má einnig finna hlekk á lagið sjálft, sem og texta. Engar reglur gilda um myndbandið aðrar en þær að því þarf að skila í Quicktime skjali, og að það þarf að hafa borist í byrjun júlí. Sigurvegarinn og söngkonan munu hins vegar leiða saman hesta sína í byrjun ágúst. Nánari upplýsingar fást með því að skrá sig á póstlista keppninnar.
Mest lesið Ekki mikið að gera í bransanum eftir líkamsárásina Lífið Ekki smart að amman skipti sér af getnaðinum Lífið Brunar um á tugmilljón króna glæsibifreið Lífið „Ég fæ það bara um leið og ég set hann inn“ Lífið Þessi lönd komust áfram í úrslit Lífið Að Illuminati stjórni öllu milli himins og jarðar Lífið Tekur nú eftir því hversu margir hafa farið í hárígræðslu Lífið Hera Björk mun kynna stigin Lífið Frumsýning: Ólafur Darri og Hera Hilmar í glænýrri seríu Bíó og sjónvarp 108 kílóum léttari: „Þessi tíu ár í grunnskóla voru eiginlega stanslaust einelti“ Lífið Fleiri fréttir „Maður er í elífu straffi sem tónlistarmaður, getur ekki gert neitt annað“ Óhræddir við raunverulegar tilfinningar Kaleo með tónleika á Íslandi í fyrsta sinn í áratug Davíð í Kaleo bjó til flöskutrommusett Fimmtán ára og gefur út frumsamda plötu Elti ástina til Íslands „Þetta er allt partur af plani hjá guði“ Eyddi unglingsárunum inni í þvottahúsi Gefa út sína fyrsta plötu síðan 2001 Þrumustuð þegar lag Barnamenningarhátíðar var frumflutt Sækir innblásturinn í rússnesku ræturnar Sjá meira