Tónlist

Vorblót væntanlegt

Bregovic heldur tónleika í Laugardalshöll 19. maí.
Bregovic heldur tónleika í Laugardalshöll 19. maí.

Miðasala á tónlistarhátíðina Vorblót, sem fer fram í annað sinn í Reykjavík 17.-19. maí, hefst á þriðjudag. Þeir sem koma fram á hátíðinni eru Salsa Celtica, Oumou Sangaré, Stórsveit Samúels J. Samúelssonar og Goran Bregovic.

Hátíðinni er ætlað að vera skemmtileg viðbót við tónleikahald í höfuðborginni og vettvangur fyrir spennandi og skemmtilega tónlist frá öllum heimshornum. Miðasala á stærsta viðburð Vorblótsins, tónleika Bregovic í Laugardalshöll, er þegar hafin. Á þriðjudag hefst síðan miðasala á aðra viðburði hátíðarinnar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.