Sigling við sólarlag 11. júní 2007 06:00 Hér áður fyrr dóu flestir á miðjum aldri með smalaprikið eða skörunginn í hendi án þess að hið opinbera þyrfti að hafa af þeim áhyggjur. Einstöku kerlingar voru þó lífseigar og voru kallaðar "ömmur". Ömmur nýttust til textílvinnu og barnagæslu á daginn en komu í stað útvarps eða sjónvarps á kvöldin. Nú hefur fólk vanið sig á að lifa árum, jafnvel áratugum saman eftir að ekki er þörf fyrir það lengur. Að sjálfsögðu er ekki hægt að hafa gamalmenni inni á nútímaheimilum og verður því hið opinbera að byggja sérstök elli- og hjúkrunarheimili með ærnum tilkostnaði. MARGT VÆRI þarfara hægt að gera við þessa peninga. Til dæmis að fjölga sendiráðum, hækka smánarlaun stjórnenda hjá ríkinu og bæta eftirlaunakjör kjörinna fulltrúa svo að einungis forgangsmál séu nefnd. Það er því tímabært að koma með sparnaðarhugmynd áður en ný og verkfús ríkisstjórn byrjar að byggja aragrúa af óþörfum elli- og hjúkrunarheimilum. ÓDÝRUSTU DAGGJÖLD í reglugerð um elli- og hjúkrunarheimili eru 13.330 kr. Langir biðlistar eru eftir svona plássum, 400 manns síðast þegar ég vissi. Þetta væri hægt að leysa á einum degi. ÓTAL SKIPAFÉLÖG reka svonefnd skemmtiferðaskip, eitt slíkt heitir Princess Cruise. Ódýarasta einstaklingsfargjald sem ég fann voru 129 dalir á dag. En þá er verið að tala um einn einstakling í eina viku í gluggalausri káetu. Ef heilbrigðisráðherrann okkar hringdi í Princess Cruise og bæði um hópafslátt fyrir tíuþúsund farþega, ekki í viku heldur til eilífðar, væri hægt að ná fínum samningum, segjum 135 dali á dag fyrir káetu með kýrauga, eða 8640 kall á mann, plús 10 dollara í þjórfé, samtals 9280 kr. Opinber sparnaður væri því 4000 kr. pr. gamalmenni pr. dag - og það munar um minna. UM BORÐ er fullkomin aðstaða, læknar, hjúkkur, tækjasalir, sundlaugar, matur eins og hver vill, herbergisþjónusta, hjólastólaþjónusta, spilavíti og kapella. Jarðarfarir eru ókeypis því að við skipshlið bíður hin vota gröf - og mikill sparnaður að þurfa ekki að leggja fokdýrar byggingarlóðir í þéttbýli undir kirkjugarða. Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Þráinn Bertelsson Mest lesið Leikjanámskeið fyrir fullorðna við Austurvöll Þórður Snær Júlíusson Skoðun Kaldar kveðjur frá Íslandi - á meðan Hörmungarnar halda áfram Hjálmtýr Heiðdal,Yousef Ingi Tamimi,Magnús Magnússon Skoðun Að mása sig hása til að tefja Ása Berglind Hjálmarsdóttir Skoðun Skýr og lausnamiðuð afstaða Framsóknar til veiðigjalda Ingibjörg Isaksen Skoðun Sál hvers samfélags birtist skýrast í því hvernig það annast börnin sín Diljá Ámundadóttir Zoëga Skoðun Sparnaðarráð fyrir ferðalagið Svandís Edda Jónudóttir Skoðun Samráðsdagar á Kjalarnesi Ævar Harðarson Skoðun Um styttingu vinnuvikunnar í leikskólum Reykjavíkurborgar, ákall um leiðréttingu Anna Margrét Ólafsdóttir,Hafdís Svansdóttir,Jónína Einarsdóttir Skoðun Að mása eða fara í golf Jón Pétur Zimsen Skoðun Leiðréttum kerfisbundið misrétti Jónína Brynjólfsdóttir Skoðun
Kaldar kveðjur frá Íslandi - á meðan Hörmungarnar halda áfram Hjálmtýr Heiðdal,Yousef Ingi Tamimi,Magnús Magnússon Skoðun
Sál hvers samfélags birtist skýrast í því hvernig það annast börnin sín Diljá Ámundadóttir Zoëga Skoðun
Um styttingu vinnuvikunnar í leikskólum Reykjavíkurborgar, ákall um leiðréttingu Anna Margrét Ólafsdóttir,Hafdís Svansdóttir,Jónína Einarsdóttir Skoðun
Kaldar kveðjur frá Íslandi - á meðan Hörmungarnar halda áfram Hjálmtýr Heiðdal,Yousef Ingi Tamimi,Magnús Magnússon Skoðun
Sál hvers samfélags birtist skýrast í því hvernig það annast börnin sín Diljá Ámundadóttir Zoëga Skoðun
Um styttingu vinnuvikunnar í leikskólum Reykjavíkurborgar, ákall um leiðréttingu Anna Margrét Ólafsdóttir,Hafdís Svansdóttir,Jónína Einarsdóttir Skoðun