Margir möguleikar með nýrri kynslóð 13. júní 2007 04:45 Góð nettenging – alltaf. Þegar þriðja kynslóðin í farsímakerfum verður komin út um borg og bý eftir um þrjú til fimm ár verður hægt að rápa um netið á háhraða á hálendinu. Markaðurinn/Anton
Síminn kynnti þriðju kynslóð í farsímakerfum í verslunum sínum á höfuðborgarsvæðinu á dögunum. Þetta er annað fjarskiptafyrirtækið af þremur sem kynnir það sem komandi kynslóð hefur upp á að bjóða en Nova hafði nokkru áður sýnt gestum sambærilega hluti. Síminn stefnir að því að bjóða upp á þjónustuna á höfuðborgarsvæðinu í haust og hefja þá uppbyggingu á kerfinu á landsbyggðinni. Gert er ráð fyrir að 60 til 80 prósent landsmanna geti nýtt sér kerfið eftir um tvö og hálft ár en að lágmarki 75 prósent á öllu landinu eftir fimm og hálft ár. Með þessari þriðju kynslóð í farsímaneti opnast talsvert fleiri möguleikar á gagnaflutningum en nú gefast.Fartölvanmyndsímafundur Með þriðju kynslóð í farsímatækni gefst kostur á myndsímafundum. Lítil myndavél myndar farsímanotandann og getur sá sem hann talar við horft á hann. Markaðurinn/AntonAð farsímanum ólöstuðum verður möguleikinn á þráðlausri nettengingu með fartölvu, óháð staðsetningu, eitt af stærstu skrefunum við innleiðingu þriðju kynslóðarinnar. Hægt verður að ferðast með fartölvuna um borg og bý og halda stöðugu og hraðvirku netsambandi innan farsímanetsins. Einu hindranirnar felast í dapurri endingu fartölvurafhlaða og eins ef farið er út fyrir borgarmörk. Ekki liggur fyrir hvenær rafhlöðurnar batna en einfalt mál er að verða sér úti um rafmagnssnúru fyrir fartölvuna. Netsambandið kemur svo til með að batna þegar nýtt og langdrægara kerfi tekur við af NMT-kerfinu eftir um tvö ár. Þá verður hægt að rápa um netið hvar sem er á hálendinu þar sem venjulegt farsímasamband er alla jafna slæmt í dag. Þriðja kynslóðin býður upp á tvenns konar tengimöguleika með fartölvum. Besta lausnin er gagnakort sem smellt er í kortarauf tölvunnar. Kort þetta þekkist þar sem tæknin hefur rutt sér til rúms, svo sem í Danmörku. Verðmiði er ekki kominn á kortið en gert er ráð fyrir að hann verði í kringum 30.000 krónur.Kerfi Símans eins og það er í dag býður einungis upp á 1,7 til 3,0 Mb/s hraða, sem er meira en nóg fyrir meðalnotandann. Það verður uppfært í sumar og mun, þegar þriðja kynslóðin verður opnuð almenningi, bjóða upp á 7,0 Mb/s tengingu, sem er sambærilegt við ADSL-tengingu yfir meðallagi. Fræðilegur möguleiki er á að bjóða allt að 14,4 Mb/s í nánustu framtíð. Það er risastökk sem verður hins vegar ekki tekið í bráð því þótt tæknin sé fyrir hendi bjóða engin gagnakort hér á landi upp á slíkan gagnahraða.Hin leiðin er að tengja tölvuna með utanáliggjandi USB-korti. Það verður nokkuð ódýrari leið og hentar ferðalöngum ágætlega. Á móti verður tengingin hægvirkari en þó þokkaleg.FarsíminnFarsímaeigendur munu taka eftir umtalsverðri byltingu þegar þeir verða komnir með farsíma sem styður við þriðju kynslóð í farsímatækni. Símarnir eru enn sem komið er í dýrari kantinum, en þó innan skynsamlegra marka. Mjög líklega munu þeir lækka í verði þegar á líður.Með þessari nýjustu kynslóð í farsímatækni gefast Frónbúum mörg ný tækifæri með auknum gagnaflutningshraða. Hægt verður að halda myndfund í beinni útsendingu í gegnum símann, taka og senda ljósmyndir í ágætri upplausn og hala niður tónlist og hlusta á í þolanlegum gæðum. Myndfundatæknin, sem virkar fyrir tilstilli lítillar myndavélar framan á farsímanum, nýtist sumum eflaust ágætlega, ekki síst heyrnarlausum. Hún þykir hafa komið vel út í þeim löndum þar sem tæknin er til staðar, svo sem í Svíþjóð.Helsti gallinn við myndfundatæknina var léleg upplausn hreyfimynda við slæm birtuskilyrði. Mun betri myndgæði fást með því að fara þangað sem meiri birtu nýtur.Myndavélin aftan á farsímanum er mun betri. Birta skiptir þar sömuleiðis máli en upplausnin á myndavél farsímans sem notaður var við kynningu á tækninni í húsakynnum Símans, Sony Ericsson K810i, með 3,2 megadíla myndavél, er talsvert betri. Sú myndavél kemur eflaust betur út á myndsímafundum. Að sama skapi má nota vélina til að sýna hvernig umhorfs er í umhverfi farsímanotanda.SjónvarpiðMóttaka sjónvarpsútsendinga kom ágætlega út þrátt fyrir lítinn farsímaskjá. Upplausn efnis, sem er pakkað á MPEG-4 formi, er vel viðunandi þegar horft er á fréttamyndir og aðra afþreyingu. Smáatriði skila sér eðlilega ekki á litlum skjá og varla hægt að búast við að útsendingar á stórmyndum á borð við Hringadróttinssögu geti notið sín. Maður með fulla sjón ætti vel að geta lesið texta af svo litlum skjá. Upplýsingar á textaborðum sem renna yfir skjáinn á BBC og CNBC voru aftur á móti illgreinanlegar. Engin verðskráSíminn hefur enn ekki flaggað verðskrá og mismunandi þjónustupökkum fyrir notkun á tækninni. Sama máli gegnir um fjarskiptafélögin Nova og Vodafone, sem bæði ætla að bjóða upp á tæknina á næstu misserum. Gera má ráð fyrir að þeir verði mismunandi, einn pakki fyrir þá sem vilja hala niður miklu magni tónlistar sem krefst mikils gagnamagns, annar fyrir móttöku sjónvarpsútseninga og annar fyrir þá sem vilja nota farsímann að mestum hluta til tals en gætu hugsað sér að nýta öðru hvoru þá möguleika sem þriðja kynslóðin í farsímatækni hefur upp á að bjóða.
Birtist í Fréttablaðinu Héðan og þaðan Mest lesið Leik lokið hjá Play Viðskipti innlent „Skrifast ekki á okkur að það hafi farið eins og er farið“ Viðskipti innlent Kalla ráðherra og forstjóra Samgöngustofu fyrir samgöngunefnd Viðskipti innlent Icelandair geti ekki svarað fyrir orðræðuna Viðskipti innlent Hækkun flugfargjalda muni skila sér í meiri verðbólgu Viðskipti innlent Engin ást eftir milli flugmanna og stjórnenda Viðskipti innlent Play kvartaði undan Icelandair þremur vikum fyrir gjaldþrot Viðskipti innlent Norðlensk framleiðsla sem er að slá í gegn á Íslandi Samstarf Play er gjaldþrota Viðskipti innlent Loka Kristjánsbakaríi Viðskipti innlent Fleiri fréttir Atvinnuleysi 5,3 prósent í ágúst Kalla ráðherra og forstjóra Samgöngustofu fyrir samgöngunefnd Hækkun flugfargjalda muni skila sér í meiri verðbólgu Leik lokið hjá Play „Skrifast ekki á okkur að það hafi farið eins og er farið“ Icelandair geti ekki svarað fyrir orðræðuna Play kvartaði undan Icelandair þremur vikum fyrir gjaldþrot Loka Kristjánsbakaríi Hætta rekstri tveggja skipa í hagræðingarskyni Engin ást eftir milli flugmanna og stjórnenda Sömu miðarnir kosti nú 370 þúsund Koma fólkinu heim með fimmtán milljóna króna leiguflugi Fargjöld ekki hækkuð af ásettu ráði Samgöngustofa fundaði nýlega með Play og fékk gögn frá KPMG „Við erum ekki með öll eggin í sömu körfu“ „Hver fyrir sig hvað það varðar“ Farþegar Play í Keflavík klóra sér í kollinum Ráðin sölu- og markaðsstjóri hjá Alfreð Kveðjubréf Einars forstjóra til starfsfólks Play er gjaldþrota Bein útsending: Staða aðfluttra á húsnæðismarkaði Spennandi tími til að opna nýjan fjölmiðill Lífsverk og Almenni lífeyrissjóðurinn í eina sæng Lagning gjaldþrota Fyrrverandi bankastjóri nýr forstjóri Thor landeldis Edda María leiðir stafræna markaðsþjónustu Vettvangs Uppsagnir hjá Fjársýslunni Guðný ráðin fræðslustjóri og Kristófer Orri í gjaldeyrismiðlun Kostaði tvo milljarða að selja Íslandsbanka Verðbólgan 4,1% og fer upp á milli mánaða Sjá meira